Þrjú mót í desember
- annaliljasig
- 14 minutes ago
- 3 min read
Þrjú badmintonmót eru á mótaskrá BSÍ í desember sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.
Jólamót unglinga - 13. desember 2025
Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík
Dagsetning: 13. desember
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Keppt í einliðaleik í U13-U19 flokkunum í geturöðuðum riðlum. Hentar fyrir öll sem þekkja vel reglurnar og hafa áhuga á keppni.
Mótsgjöld: 3.500 kr á mann og greiðist við skráningu í Abler
Skráning: Fer fram í Abler eða með því að senda póst á bh@bhbadminton.is og lýkur fimmtudaginn 4. desember.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Ljúflingamót TBR - 14. desember 2025
Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík
Dagsetning: 14. desember
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Á Ljúflingamótinu er spilað á heilum stórum velli með plastkúlum. Allir fá 3-5 leiki. Strákar og stelpur í sama flokki en raðað eftir getu eins og hægt er. Allir fá verðlaun fyrir þátttöku. Keppni og verðlaunaafhendingu lýkur í síðasta lagi kl.14:00 en líklega fyrr.
Mótið hentar fyrir þau sem kunna orðið vel reglurnar og eru spennt fyrir að keppa. Mælum með að þau sem eru í 1.bekk og þau sem eru nýlega byrjuð að æfa bíði aðeins með að fara á mót. Það verður mót á Akranesi 18.jan, í Mosó 14. eða 15.feb og hjá okkur í Strandgötu 2. eða 3.maí sem væri sniðugt fyrir þau að stefna frekar á.
Mótsgjöld: 800 kr á mann og greiðist við srkáningu í Abler.
Skráning: Fer fram í Abler eða með því að senda póst á bh@bhbadminton.is og lýkur sunnudaginn 7. desember.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Jólamót trimmara - 28. desember 2025
Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík
Dagsetning: 28. desember
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Upplýsingar væntanlegar
Skráning: Upplýsingar væntanlegar
Mótsgjöld: Upplýsingar væntanlegar
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Abler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Abler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.
Nýtt keppnisfyrirkomulag á unglingamótum sem prófað var í fyrra heldur áfram. Ekki verða nein sérstök A og B mót eins og þekktist áður heldur verða öll mótin nema tvö spiluð í geturöðuðum riðlum. Sjá nánar með því að smella hér.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2025-2026 U9 - fædd 2017 og síðar U11 - fædd 2016 og 2015 U13 - fædd 2014 og 2013 U15 - fædd 2012 og 2011 U17 - fædd 2010 og 2009 U19 - fædd 2008 og 2007





Comments