Allir með æfingar að hefjast aftur eftir sumarfrí
- 10 minutes ago
- 1 min read
Badmintonfélag Hafnarfjarðar fór af stað með nýjan æfingahóp í janúar 2025 sem ber heitið Allir með í badminton. Hópurinn er fyrir fólk á öllum aldri með þroskahömlun, hreyfihömlun eða aðrar sérþarfir og áhuga á að prófa badminton. Æfingar hefjast á ný eftir sumarfrí sunnudaginn 6. september.
Æfingar Allir með hóps BH verða í vetur á sunnudögum kl.15:00-16:00 fyrir allan aldur og getustig. Einnig verður boðið uppá spilaæfingu á miðvikudögum kl.19:10-20:10 fyrir vana spilara 18 ára og eldri. Mælum með að allir byrji á sunnudögum og bæti svo miðvikudögunum við þegar þau eru komin vel af stað í íþróttinni.
Hægt er að fá lánaða spaða frítt á staðnum og tekið vel á móti öllum.
Þjálfari
Þjálfari hópsins er Sólrún Anna Ingvarsdóttir badmintonþjálfari og íþróttafræðingur en alltaf eru 2 þjálfarar henni til aðstoðar.
Skráning
Skráning fer fram í Abler:
Velkomið að prófa 1-2 skipti áður en gengið er frá skráningu.
Aðstoð við skráningu veitir Anna Lilja í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is eða síma 8686361.
Mót
Boðið verður uppá tvö mót fyrir Allir með hópinn í vetur, öll sem vilja geta stefnt á að taka þátt en það er að sjálfsögðu engin skilda. Fyrra mótið verður laugardaginn 14.nóvember og það síðara 25.apríl. Nánari upplýsingar koma síðar.






Comments