Una og Sólrún fengu gullmerki BH
Laugardaginn 21.nóvember fengu badmintonkonurnar Sólrún Anna Ingvarsdóttir og Una Hrund Örvar gullmerki BH. Þær urðu Íslandsmeistarar í tvíliðaleik kvenna í apríl síðastliðnum og skráðu þar með nafn sitt í sögubækur félagsins. Aldrei áður hafði par frá BH sigrað í efsta flokki á Meistaramóti Íslands.
Bæði Una Hrund og Sólrún Anna eru í landsliði Íslands í badminton og miklar íþróttakonur. Þær starfa jafnframt sem þjálfarar hjá BH og eru alltaf tilbúnar að leggja sitt af mörkum í sjálfboðaliðastörfum fyrir félagið. Sólrún Anna og Una Hrund eru frábærir liðsfélagar, góðar fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur og vel að þessari viðurkenningu komnar.
Árið 2009, þegar BH eignaðist sinn fyrsta Íslandsmeistara í efsta flokki í badminton, ákvað stjórn félagsins að gera það að hefð að veita Íslandsmeisturum í efsta flokki gullmerki félagsins. Það var Erla Björg Hafsteinsdóttir, núverandi formaður BH, sem vann þennan fyrsta titil og það var því sérstaklega viðeigandi að hún skyldi afhenda þeim Unu og Sólrúnu gullmerkin á laugardaginn.
Afhendingin fór fram við lok keppni í einliðaleik á Meistaramóti BH og RSL og voru því fjölmargir í húsinu til að klappa þeim lof í lófa.
Innilega til hamingju með gullmerkin, Una og Sólrún, við erum stolt af ykkur.
Meðfylgjandi myndir tók Kristján Pétur Hilmarsson í Strandgötu á laugardaginn.






Comments