Mikil gleði og góð þátttaka á Hafnarfjarðarleikunum
Hafnarfjarðarleikarnir í Special Olympics badminton fóru fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 14. nóvember. Mótið var haldið í fyrsta sinn og tóku 16 keppendur frá þremur félögum þátt en þau voru BH, ÍA og Nes. Mikil gleði og góð stemning einkenndi mótið þar sem keppendur sýndu flotta takta og voru duglegir að hvetja hvern annan.
Þetta var í annað sinn sem keppt er í Special Olympics badminton á Íslandi. Fyrsta mótið fór fram á Íslandsleikunum síðasta vor, en þá voru átta keppendur skráðir til leiks. Nú voru þeir orðnir 16 og hefur keppendafjöldinn því tvöfaldast á milli móta. Það er einstaklega ánægjuleg þróun og sýnir að áhuginn fer vaxandi.
Unified tvíliðaleikur í fyrsta sinn á Íslandi
Sérstök nýjung á mótinu var keppni í unified tvíliðaleik, en þetta var í fyrsta sinn sem keppt var í þeirri grein í badminton á Íslandi. Í unified tvíliðaleik spila fatlaður og ófatlaður leikmaður saman í pari.
Alls tóku 13 leikmenn úr keppnishópum BH þátt í þessari skemmtilegu nýjung ásamt keppendum mótsins. Keppnin heppnaðist einstaklega vel og var frábært að sjá leikmenn úr ólíkum hópum félagsins sameinast á badmintonvellinum. Þetta var skemmtileg upplifun fyrir alla þátttakendur og vonandi verður unified tvíliðaleikur fastur liður á komandi mótum.
Allir sigurvegarar
Auk unified tvíliðaleiks var keppt í einliðaleik á mótinu. Raðað var í riðla eftir aldri og getu og fengu allir verkefni við hæfi. Sumir fengu stig fyrir að hitta á kúluna og aðrir spiluðu eftir hefðbundnum leikreglum.
Í mótslok fengu allir þátttakendur verðlaunapening og grip fyrir badmintonspaða. Á Hafnarfjarðarleikunum eru allir þátttakendur sigurvegarar.
Mikilvæg skref í uppbyggingu íþróttarinnar
Það er afar ánægjulegt að sjá hversu hratt Special Olympics badminton hefur þróast á Íslandi á stuttum tíma. Með móti sem þessu vonumst við til að skapa fleiri tækifæri fyrir fólk með þroskahömlun til að taka þátt í keppni, upplifa gleðina sem fylgir íþróttum og eignast nýja félaga.
Við hjá BH erum stolt af því að taka þátt í uppbyggingu þessarar greinar með góðum stuðningi frá Special Olympics á Íslandi og vonum að mótið verði árlegur viðburður sem haldi áfram að vaxa og dafna.
Anna Lilja Sigurðardóttir og Sólrún Anna Ingvarsdóttir sáu um undirbúning og framkvæmd mótsins fyrir hönd félagsins. Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir, Una Hrund Örvar og Elín Ósk Traustadóttir voru með þeim í mótsstjórn. Kristján Pétur Hilmarsson tók ljósmyndir og Magnús Orri Arnarsson myndbönd.
Við þökkum öllum keppendum, aðstandendum og þeim sem komu að framkvæmd mótsins kærlega fyrir frábæran dag og hlökkum til að sjá enn fleiri taka þátt í næsta móti.
Úrslit leikja má finna á tournamentsoftware.com.
Fjölmargar flottar myndir frá mótinu eru á Facebook síðu BH.
Skemmtilegt myndband á Instagram.







Comments