Átta BH-ingar kepptu í Noregi
Alþjóðlega badmintonmótið FZ Forza Norwegian International fór fram í Sandefjord í Noregi dagana 5.–8. nóvember. Alls tóku 14 leikmenn úr íslenska landsliðshópnum þátt í mótinu, þar af átta frá BH.
Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni og gefur stig á heimslistann. Markmið okkar fólks með þátttökunni var ekki aðeins að vinna sig upp heimslistann heldur einnig að öðlast dýrmæta keppnisreynslu og mæta nýjum og fjölbreyttari andstæðingum en kostur gefst á hér heima.
Tvenndarleikur
Róbert Ingi Huldarsson og Una Hrund Örvar komust lengst BH-inganna í tvenndarleik. Þau unnu tvo leiki í undankeppninni og tryggðu sér sæti í aðalkeppninni. Þar mættu þau sterku pari í 32 liða úrslitum sem reyndist að lokum standa uppi sem sigurvegari mótsins.
Jón Sverrir Árnason og Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir léku spennandi þriggja lotu leik í undankeppninni en þurftu að játa sig sigruð eftir harða baráttu.
Katla Sól Arnarsdóttir lék með Eggerti Þór Eggertssyni frá TBR. Þau mættu sterku dönsku pari í undankeppninni og töpuðu í tveimur lotum.
Einliðaleikur kvenna
Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir keppti í einliðaleik kvenna þar sem hún mætti mjög sterkum leikmanni frá Indónesíu. Hrafnhildur tapaði í tveimur lotum en sú indónesíska gerði sér lítið fyrir og komst alla leið í úrslit mótsins þar sem hún hafnaði í 2. sæti.
Einliðaleikur karla
Fimm BH-ingar kepptu í undankeppni einliðaleiks karla.
Róbert Ingi Huldarsson, Jón Víðir Heiðarsson, Rúnar Gauti Kristjánsson og Jón Sverrir Árnason töpuðu allir sínum fyrstu leikjum í tveimur lotum.
Stefán Logi Friðriksson byrjaði hins vegar vel og sigraði grænlenskan andstæðing í fyrstu umferð. Í næsta leik mætti hann pólskum leikmanni og eftir spennandi þriggja lotu viðureign þurfti Stefán að játa sig sigraðan í oddalotu.
Tvíliðaleikur kvenna
Katla Sól Arnarsdóttir og Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir komust beint inn í aðalkeppnina í tvíliðaleik kvenna. Þar mættu þær sterku norsku pari og töpuðu í tveimur lotum.
Una Hrund Örvar lék með Örnu Karen Jóhannsdóttur frá TBR og komust þær einnig beint inn í aðalkeppnina. Þær mættu öflugu dönsku pari sem hafði betur í tveimur lotum. Danska parið komst síðan alla leið í úrslit mótsins og hafnaði í 2. sæti.
Tvíliðaleikur karla
Jón Víðir Heiðarsson og Stefán Logi Friðriksson mættu dönsku pari í fyrstu umferð undankeppninnar og töpuðu í tveimur lotum.
Jón Sverrir Árnason og Rúnar Gauti Kristjánsson mættu norsku pari í undankeppninni en þurftu einnig að sætta sig við tap.
Bestum árangri Íslendinganna á mótinu náðu TBR-ingarnir Kristófer Darri Finnsson og Davíð Bjarni Björnsson, sem komust alla leið í undanúrslit í tvíliðaleik karla.
Nánari úrslit mótsins má finna á vef Alþjóðabadmintonsambandsins (BWF).
Við erum stolt af okkar fólki sem heldur áfram að sækja sér dýrmæta reynslu á alþjóðlega keppnissviðinu. Slík mót eru mikilvægur liður í því að þróast sem badmintonleikmenn, takast á við nýjar áskoranir og öðlast reynslu gegn sterkum andstæðingum.
Við óskum öllum íslensku keppendunum til hamingju með frammistöðuna og hlökkum til að fylgjast með þeim áfram!

Rúnar Gauti Stefán Logi, Katla Sól og Hrafnhildur Edda Jón Víðir og Jón Sverrir Una Hrund og Róbert Ingi




Comments