top of page
Search

Ísland Evrópumeistari smáþjóða í badminton

3 minutes ago
1 min read

Íslenska landsliðið í badminton stóð uppi sem sigurvegari á Evrópukeppni smáþjóða sem fór fram í Færeyjum dagana 30. október til 1. nóvember.


Íslenska liðið mætti heimamönnum frá Færeyjum í úrslitaleiknum á sunnudaginn og hafði betur 3–1 eftir spennandi viðureign. Með sigrinum náði Ísland jafnframt fram hefndum eftir 3–2 tap gegn Færeyingum í riðlakeppni mótsins.


Við BH-ingar áttum tvo glæsilega fulltrúa í sigurliðinu, þær Hrafnhildi Eddu Ingvarsdóttur og Unu Hrund Örvar. Auk þess var Sólveig Ósk Jónsdóttir dómari á mótinu og því átti BH þrjá fulltrúa á þessari glæsilegu badmintonhátíð.


Við óskum íslenska landsliðinu innilega til hamingju með frábæran árangur og erum sérstaklega stolt af okkar konum sem voru félaginu til mikils sóma!


Nánari úrslit mótsins má finna hér á tournamentsoftware.com.


Glæsilegir fulltrúar BH á Evrópukeppni smáþjóða, Hrafnhildur Edda, Sólveig Ósk og Una Hrund.
Glæsilegir fulltrúar BH á Evrópukeppni smáþjóða, Hrafnhildur Edda, Sólveig Ósk og Una Hrund.
Íslenska landsliðið í badminton - sigurvegarar á Evrópukeppni smáþjóða 2026
Íslenska landsliðið í badminton - sigurvegarar á Evrópukeppni smáþjóða 2026

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page