top of page
Search

Frábær árangur BH-inga á alþjóðlegu móti í Finnlandi

26 minutes ago
1 min read

BH-ingarnir Aron Snær Kjartansson, Erik Valur Kjartansson, Hákon Kemp og Lúðvík Kemp tóku þátt í alþjóðlega badmintonmótinu RSL Finnish U17 Open um helgina og stóðu sig með mikilli prýði. Mótið er hluti af Evrópumótaröð unglinga og gefur stig á heimslista U17.


Strákarnir kepptu allir í einliðaleik og hófu keppni með sigri í fyrstu umferð. Þeir mættu hins vegar ofjörlum sínum í annarri umferð og féllu þar úr keppni.


Í tvíliðaleik léku Aron Snær og Erik Valur saman. Þeir sigruðu finnskt par í fyrstu umferð og tryggðu sér þar með sæti í átta liða úrslitum. Þar mættu þeir sterku pari frá Eistlandi, sem var raðað númer tvö í mótið. Eistarnir höfðu betur eftir jafnan og skemmtilegan leik.


Bræðurnir Hákon og Lúðvík áttu einnig frábært mót og komust alla leið í undanúrslit í tvíliðaleik. Þeir hófu keppni með öruggum sigri á finnsku pari og fylgdu honum eftir með sigri á öðru finnsku pari í hörkuspennandi oddaleik. Í undanúrslitum mættu þeir parinu sem var raðað númer eitt og þurftu að sætta sig við tap þrátt fyrir góða baráttu.


Það er ekki á hverjum degi sem íslenskir badmintonleikmenn vinna leiki á Evrópumótaröðinni, en um helgina náðu allir fjórir BH-ingarnir þeim áfanga. Það er frábær árangur og dýrmæt reynsla fyrir strákana sem halda áfram að láta að sér kveða á alþjóðlegum mótum.


Nánari úrslit má finna hér.


Næsta verkefni strákanna er Swedish Youth Games, sem fram fer í Malmö í Svíþjóð dagana 13.–15. nóvember. Allir fjórir eru í U17 landsliði Íslands og verða meðal átta íslenskra leikmanna sem taka þátt í mótinu.



Aron Snær, Erik Valur, Lúðvík og Hákon náðu frábærum árangri á RSL Finish open U17 um helgina.
Aron Snær, Erik Valur, Lúðvík og Hákon náðu frábærum árangri á RSL Finish open U17 um helgina.

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page