top of page
Search

BH-krakkar í stuði á Unglingameistaramóti KR

2 days ago
1 min read

Unglingameistaramót KR fór fram í Frostaskjólinu helgina 17.-18.október. Als voru 119 skráð til keppni, þar af 26 frá BH. Keppt var í einliðaleik í U11-U19 flokkum barna og unglinga. Okkar fólk stóð sig vel og spilaði marga flotta leiki.


Í U11 flokknum spiluðu allir 3-5 lotur í 15 stig og fengu viðurkenningu fyrir þátttökuna í mótslok. Í U13-U19 flokkunum var spilað í geturöðuðum riðlum og fengu þau sem voru í 1. og 2.sæti í hverju riðli verðlaun.


Verðlaunahafar BH á mótinu voru:


  • Ýmir Örn Rolfsson, 1.sæti í U13B

  • Atli Heiðar Bjarnason, 2.sæti í U13B

  • Bjartur Ágústsson, 1.sæti í U13C

  • Marikó Erla Sigurgeirsdóttir, 2.sæti í U13B

  • Aría Ísafold E. Bjerkli, 2.sæti í U13C

  • Benedikt White, 2.sæti í U15B

  • Sandra María Hjaltadóttir, 1.sæti í U15B


Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.


Myndir sem þjálfar BH tóku af okkar fólki má finna hér á Facebook.


Takk fyrir þátttökuna krakkar og til hamingju með góðan árangur.


BH-ingarnir sem kepptu í U11 flokknum á Unglingameistaramóti KR sæl og glöð með þátttökuverðlaunin sín.
BH-ingarnir sem kepptu í U11 flokknum á Unglingameistaramóti KR sæl og glöð með þátttökuverðlaunin sín.


 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page