top of page
Search

Dagskráin um helgina

32 minutes ago
2 min read

Það er heilmikið um að vera hjá okkar fólki um helgina. BSÍ verður með landsliðsæfingabúðir þar sem 22 BH-ingar eru boðaðir og 26 BH-ingar taka þátt á Unglingameistaramóti KR. Þá fer Deildakeppni í borðtennis fram í Strandgötu um helgina þar sem nokkur BH lið taka þátt en allar badmintonæfingar falla niður á sunnudag vegna keppninnar. Boðið er uppá opinn tíma klukkan 15-16:30 í staðinn.


Unglingameistaramót KR


Keppt verður í einliðaleik á Unglingameistaramóti KR um helgina í Frostaskjóli í Vesturbæ Reykjavíkur. 26 BH-ingar eru skráðir til keppni. U11 flokkurinn keppir á sunnudag klukkan 9:00-11:30 en tímasetningar leikja í U13-U19 má finna með því að smella á nöfn leikmanna hér á tournamentsoftware.com. Hvetjum keppendur til að mæta eigi síðar en 30 mín fyrir áætlaðan leiktíma í hús og muna að taka með sér vatnsbrúsa og hollt og gott nesti. Mikilvægt að láta Kjartan íþróttastjóra vita ef upp koma veikindi eða önnur óvænt forföll.


Landsliðsæfingabúðir


Landsliðshópar BSÍ koma saman til æfinga frá fimmtudegi til sunnudags. Æfingarnar verða í Strandgötu á fimmtudag og föstudag en í TBR á laugardag og sunnudag. 22 BH-ingar eru boðaðir og óskum við þeim góðs gengis. Nánari upplýsingar má finna á hér á badminton.is.


Æfingar falla niður á sunnudag - opinn tími klukkan 15


Sunnudaginn 18.október falla allar badmintonæfingar niður í Íþróttahúsin við Strandgötu vegna Deildakeppni í borðtennis. Nokkur lið frá BH taka þátt í keppninni og má sjá nánari upplýsingar um hana á hér á bordtennis.is. Í staðinn fyrir æfingarnar verður boðið uppá opinn tíma klukkan 15:00-16:30. Þar eru allir BH-ingar velkomnir að mæta og spila frjálst með vinum og/eða fjölskyldu. Natalía þjálfari verður á staðnum til að lána spaða og kúlur og aðstoða þau sem vilja.


Allir með æfing á mánudag


Allir með æfingin sem vanalega er á sunnudögum klukkan 15:00-16:00 færist yfir á mánudag kl.18:00-19:00 þessa vikuna. Allir skráðir iðkendur hafa fengið tilkynningu um það í Abler.


Góða helgi kæru félagar.


Allir BH-ingar eru velkomnir í opinn tíma í Strandgötu á sunnudaginn klukkan 15-16:30
Allir BH-ingar eru velkomnir í opinn tíma í Strandgötu á sunnudaginn klukkan 15-16:30





 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page