top of page
Search

Góð ferð til Siglufjarðar

4 days ago
2 min read

BH fór í góða keppnisferð til Siglufjarðar helgina 2.-4.október með 28 keppendur, 3 þjálfara og fullt af hjálpsömum foreldrum. Einnig voru keppendur frá TBS, TBR, Hamar, Tindastól og Aftureldingu á mótinu en BH-ingar voru næst fjölmennastir á eftir heimamönnum frá TBS. Þetta er árleg ferð hjá okkur til Siglufjarðar og yfirleitt er hún fyrstu helgina í október.


Lagt var af stað um hádegi á föstudag með rútu. Á leiðinni norður var stoppað í sundi á Blönduósi og þar borðað heimatilbúið BH pastasalat í kvöldmat áður en haldið var áfram til Siglufjarðar. Á Siglufirði var gist í sal Slysavarnarfélagsins. Morgunmatur var snæddur í bakaríinu og borðaði hópurinn svo saman pizzu í rauða húsinu á laugardagskvöldið.


Keppt var í U11-U17 flokkunum í geturöðuðum riðlum í einliða- og tvíliðaleik. Allir fengu 3-4 leiki í einliðaleik og flestir 2-4 leiki í tvíliðaleik. Mikið af jöfnum og skemmtilegum leikjum. Í U11 flokknum fengu allir þátttökuverðlaun en í U13-U17 voru veitt verðlaun til þeirra sem voru í 1. og 2.sæti í sínum riðlum. Einnig voru útdráttarverðlaun.


Eftirfarandi BH-ingar unnu til verðlauna í sínum riðlum í einliðaleik:


U13B hnokkar - Lárus Freyr Helgason 2.sæti

U15B meyjar - Lilja Guðrún Kristjánsdóttir 2.sæti U15B sveinar - Kári Bjarni Kristjánsson 1.sæti U15C meyjar - Sandra Rós Guðmundsdótir, 2.sæti U15C sveinar - Sigurður Bill Arnarsson 1.sæti U15C sveinar - Arnar Breki Halldórsson 2.sæti


Eftirfarandi BH-ingar unnu til verðlauna í sínum riðlum í tvíliðaleik:

U13B tátur - Aría Ísafold Bjerkli 2.sæti

U13B tátur - Gerður Schmidt Víkingsdóttir 2.sæti U13-U15B sveinar - Bergur Björnsson 2.sæti U15A meyjar - Lilja Guðrún Kristjánsdóttir 2.sæti U15B meyjar - Katrín Sunna Erlingsdóttir 1.sæti

Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.


Kristján Pétur Hilmarsson tók mikið af skemmtilegum myndum af okkar krökkum á mótinu má finna þær hér hér á Facebook ásamt myndum sem þjálfarar tóku af verðlaunaafhendingum o.fl.


Sólrún, Una og Siggi voru þjálfarar í ferðinni en með þeim í fararstjórn voru þrír foreldrar auk þess sem fleiri foreldrar gerðu sér ferð norður til að fylgjast með mótinu og aðstoða hópinn. Allt gekk vel og okkar fólk til fyrirmyndar.


Á laugardagskvöldið var hópnum boðið í heimsókn til Björgunarsveitarinnar þar sem þau fengum að skoða björgunarbát, nýjan björgunarsveitarbíl, dróna o.fl sem var mjög skemmtilegt og þökkum við Ingvari hjá björgunarsveitinni fyrir frábæra kynningu.


Þökkum TBS kærlega fyrir vel skipulagt og flott mót.



Hópurinn að leggja af stað úr Strandgötu
Hópurinn að leggja af stað úr Strandgötu



 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page