Glæsilegt Meistaramót BH og RSL í Strandgötu
Meistaramót BH og RSL fór fram í glæsilegri umgjörð í Íþróttahúsinu við Strandgötu helgina 20.–22. nóvember. Mótið er hluti af mótaröð Badmintonsambands Íslands og tók margt af besta badmintonfólki landsins þátt. Áhorfendur fengu að sjá marga jafna og skemmtilega leiki og var góð stemning í stúkunni.
Keppt var í þremur deildum á mótinu, úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild fullorðinna, og voru 96 keppendur frá sjö félögum skráðir til leiks. Flestir keppendur komu frá TBR, eða 41 talsins. Frá BH var 31 keppandi skráður, 14 frá Aftureldingu, fjórir frá hvoru félagi, TBS og Hamri, og einn frá hvoru félagi, KR og ÍA.
Hrafnhildur Edda tvöfaldur sigurvegari í úrvalsdeild
Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir, BH, fagnaði tvöföldum sigri í úrvalsdeild. Hún sigraði bæði í einliðaleik kvenna og í tvíliðaleik kvenna ásamt Kötlu Sól Arnarsdóttur, BH.
Ikmal Hussain Jaafar, TBS, sigraði í einliðaleik karla og var það jafnframt fyrsti sigur Siglfirðinga í úrvalsdeild. Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnson sigruðu í tvíliðaleik karla og þau Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir í tvenndarleik, en þau koma öll frá TBR.
Fjögur félög áttu sigurvegara í 1. og 2. deild
Verðlaunin í 1. og 2. deild dreifðust vel á milli félaga en alls áttu fjögur félög sigurvegara í þessum deildum.
Í 1. deild sigraði Lúðvík Kemp, BH, í einliðaleik karla annað árið í röð og Kamilla Maddý Heimisdóttir, TBS, í einliðaleik kvenna. Í tvíliðaleik karla sigruðu TBR-ingarnir Jónas Baldursson og Vignir Haraldsson og í tvíliðaleik kvenna þær Margrét Dís Stefánsdóttir, UMFA, og Sigrún Marteinsdóttir, TBR. Í tvenndarleik voru sigurvegararnir Katla Sól Arnarsdóttir og Hákon Kemp frá BH.
Í 2. deild sigraði Sunna María Ingólfsdóttir, UMFA, í einliðaleik kvenna og Felix Krummi Lárusson, TBR, í einliðaleik karla. Í tvíliðaleik kvenna voru það Kamilla Maddý Heimisdóttir, TBS, og Regína Sigurgeirsdóttir, TBR, sem stóðu uppi sem sigurvegarar en í tvíliðaleik karla sigruðu BH-ingarnir Dimitri Plugari og Óskar Ingólfsson. Í tvenndarleik sigruðu Birgir Hilmarsson og Sigrún Marteinsdóttir frá TBR.
Nánari úrslit má finna á tournamentsoftware.com.
Glæsileg verðlaun
Verðlaunahafar í öllum flokkum fengu gjafabréf, sokka og brúsa frá RSL á Íslandi. Auk þess gáfu eftirfarandi fyrirtæki glæsileg verðlaun:
Hafið fiskverslun
Ormsson
Reykjavík Kitchen
Sky Lagoon
Ísgerð Hafnarfjarðar
MS – Kókómjólk
Hreysti
Laugarásbíó
Nova
Gosfélagið – Klaki
Herjólfsgufan
Reykjavíkurmaraþon
Þökkum þessum frábæru fyrirtækjum kærlega fyrir rausnarlegan stuðning við mótið.
Um 1.000 myndir frá mótinu
Um 1.000 myndir frá keppni og verðlaunaafhendingu mótsins eru væntanlegar hér á Facebook. Við hvetjum félög og leikmenn til að nýta myndirnar og deila þeim á samfélagsmiðlum.
Ljósmyndari BH, Kristján Pétur Hilmarsson, sá til þess að ná myndum af öllum keppendum á mótinu og þökkum við honum kærlega fyrir frábær störf.
Öflugt teymi að baki glæsilegu mótshaldi
Spilað var á keppnismottum BH og var öllum leikjum mótsins streymt í beinni útsendingu á YouTube. BH-ingurinn Róbert Ingi Huldarsson hafði veg og vanda af útsendingunni og tilheyrandi úrslitaþjónustu, sem hann hefur sjálfur forritað og er á heimsmælikvarða. Virkilega vel gert hjá Róberti.
Um 40 BH-ingar lögðu sitt af mörkum við undirbúning og framkvæmd mótsins sem og frágang að móti loknu. Án þessa öfluga hóps væri ekki hægt að halda stórmót á borð við þetta.
Þökkum leikmönnum, þjálfurum, áhorfendum, starfsfólki, samstarfsaðilum, dómurum, teljurum og öðrum sjálfboðaliðum kærlega fyrir frábæra helgi.







Comments