Meistaramót BH og RSL um helgina
Updated: 21 minutes ago
Helgina 20.–22. nóvember fer Meistaramót BH og RSL 2026 fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Mótið er hluti af mótaröð Badmintonsambands Íslands og verður margt af besta badmintonfólki landsins meðal keppenda. Alls eru 94 keppendur skráðir til leiks frá sjö félögum: BH, Hamri, ÍA, KR, TBR, TBS og UMFA. Keppt verður í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild fullorðinna.
Við hvetjum alla iðkendur til að koma og fylgjast með keppninni. Það er bæði skemmtilegt og lærdómsríkt að horfa á okkar besta badmintonfólk spila. Einnig gefst iðkendum tækifæri til að taka þátt með því að starfa sem teljarar eða standa að veitingasölu í fjáröflunarskyni (sjá nánar hér að neðan).
Breytingar á æfingum vegna mótsins
Vegna mótsins falla æfingar niður á föstudag frá kl. 16:00 og á sunnudag frá kl. 10:00–15:00. Æfing Allir með hópsins færist aftur um klukkustund og verður kl. 16:00–17:00 þennan sunnudag í stað 15:00-16:00.
Dagskrá
Áætluð dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Föstudagur 20. nóvember
Kl. 17:00–22:00 – Einliðaleikur
Laugardagur 21. nóvember
Kl. 10:00–14:30 – Einliðaleikur
Kl. 15:00–18:00 – Tvíliðaleikur
Sunnudagur 22. nóvember
Kl. 10:00–15:00 – Tvenndarleikur
Niðurröðun og tímasetningar einstakra leikja má finna hér á tournamentsoftware.
Athugið að allar tímasetningar eru birtar með fyrirvara. Tímaáætlunin getur raskast ef mikið verður um langa leiki og einnig geta leikir hafist allt að 10 mínútum fyrr en áætlað er ef mótið gengur hraðar fyrir sig.
Við biðjum því keppendur að mæta í húsið að minnsta kosti 30 mínútum fyrir áætlaðan leiktíma. Mikilvægt er að tilkynna veikindi eða önnur óvænt forföll eins fljótt og auðið er á netfangið bh@bhbadminton.is.
Bein útsending
Boðið verður upp á beina útsendingu frá öllum völlum á mótinu á YouTube-rás Badmintonfélags Hafnarfjarðar.
Teljarar
Iðkendum BH í U13–U19 flokkum sem hafa keppnisreynslu og þekkja vel badmintonreglurnar býðst að starfa sem teljarar á mótinu.
Sex vaktir eru í boði og fá teljarar gjafabréf í Joe & The Juice fyrir hverja vakt, auk þess sem boðið verður upp á mat á milli leikja.
Áhugasamir geta skráð sig í Sportabler eða með því að senda tölvupóst á bh@bhbadminton.is.
Stundum hafa færri komist að en vilja í teljarastörfin og því hvetjum við áhugasama til að skrá sig sem fyrst.
Eftirfarandi teljaravaktir eru í boði (hámark þrjár vaktir á mann):
Föstudagur kl. 16:45–19:30
Föstudagur kl. 19:15–22:00
Laugardagur kl. 9:45–14:00
Laugardagur kl. 14:45–18:30
Sunnudagur kl. 9:45–13:00
Sunnudagur kl. 12:45–16:00
Veitingasala – tækifæri til fjáröflunar
BH-ingar sem hafa áhuga á að taka þátt í veitingasölu á mótinu geta skráð sig hér í skráningarskjali.
Hagnaður af sölunni skiptist á milli þeirra sem taka þátt, annaðhvort með því að sjá um sölu eða útvega vörur til sölu án endurgjalds eða á hagstæðu verði.
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir iðkendur til að safna í sinn badmintonsjóð og létta þannig undir kostnaði við mótsgjöld, keppnisferðir og annað tengt badmintoninu.
Sjáumst hress í Strandgötu um helgina! 🏸





Comments