top of page
Search

Sex BH-ingar með U17 landsliðinu í Svíþjóð

3 hours ago
2 min read

Alþjóðlega badmintonmótið Swedish Youth Games fór fram í Malmö í Svíþjóð um helgina. Mótið er hluti af U17 mótaröð Badminton Europe og gefur stig á heimslistann.


Landsliðsþjálfarar Íslands völdu hóp leikmanna til þátttöku en ekki komust allir íslensku leikmennirnir inn í mótið og einhverjir þurftu að draga sig úr keppni vegna meiðsla. Sex BH-ingar tóku þátt í mótinu, þeir Aron Snær, Birnir Hólm, Erik Valur, Hákon Kemp, Hilmar Karl og Lúðvík Kemp, ásamt þeim Þórdísi Eddu og Lilju Dórótheu frá TBR.


Mótið var mjög sterkt og ljóst fyrirfram að íslensku keppendurnir ættu við ramman reip að draga. Okkar fólk barðist þó vel og fékk dýrmæta reynslu í leikjum gegn sterkum og ókunnum andstæðingum.


Bræðurnir Hákon og Lúðvík með sigra í einliðaleik


Bræðurnir Hákon og Lúðvík Kemp komust báðir áfram úr fyrstu umferð í einliðaleik.


Hákon sigraði leikmann frá Tyrklandi í hörkuspennandi þriggja lotu leik en tapaði í næstu umferð fyrir leikmanni frá Litháen sem var þriðji styrkleikaraðaði keppandi mótsins.


Lúðvík mætti sænskum andstæðingi í fyrstu umferð og hafði sigur eftir þrjár lotur, þar sem hann tryggði sér sigurinn nokkuð örugglega í oddalotunni. Í næstu umferð mætti hann Svíanum Ludvig Marmsten, sem fór alla leið og sigraði mótið.


Bræðurnir léku einnig saman í tvíliðaleik þar sem þeir voru hársbreidd frá sigri en þurftu að sætta sig við naumt tap eftir þrjár lotur.


Nánari úrslit má finna á vef BWF.


Við erum stolt af leikmönnum okkar fyrir að takast á við krefjandi verkefni og reyna sig gegn sterkum alþjóðlegum andstæðingum. Þátttaka í mótum sem þessum er mikilvægur liður í þroska ungra badmintonleikmanna og sú reynsla sem þeir öðlast mun vonandi nýtast þeim vel í áframhaldandi badmintonvegferð.


Gerda Voitechovskaja, þjálfari BH, er í landsliðsþjálfarateymi Íslands og var með hópnum í Svíþjóð. Kjartan Drafnarson, leikmaður og foreldri hjá BH, var fararstjóri í ferðinni.


Glæsilegur hópur í Leifsstöð á leið til Svíþjóðar
Glæsilegur hópur í Leifsstöð á leið til Svíþjóðar

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page