top of page
Search

Skráning í næstu mót og viðburði

2 days ago
4 min read

Keppnistímabilið í badminton stendur nú sem hæst og er móta og viðburðadagskráin þétt. Upplýsingar um næstu viðburði má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót. Hvetjum þau sem eru spennt fyrir keppni að kynna sér það sem er framundan og skrá sig innan skráningarfrestsins.


Allir með leikarnir - 31.október 2026


Staðsetning: Laugardalshöll


Dagsetning :  31.október kl.10:00-14:00


Fyrirkomulag: Allir með leikarnir eru íþróttahátíð fyrir börn á grunnskólaaldri með fatlanir eða stuðningsþarfir. Á leikunum fá þátttakendur tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi, meðal annars badminton. Markmið leikana er að kynna fyrir börnum ólíkar íþróttir og gefa þeim tækifæri til að uppgvöta íþrótt sem vekur áhuga þeirra.


Áhersla er lögð á leik, gleði og þátttöku á eigin forsendum. Engin krafa er gerð um fyrri reynslu af íþróttum og eru allir velkomnir.


Sjá nánar hér.


Þátttökugjald: 1.500 kr


Skráning: Skráning fer fram hér í Abler.


Vetrarmót unglinga - 7.-8.nóvember 2026


Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík


Dagsetning: 7.-8.nóvember 2026


Flokkar: U13, U15 og U17-U19


Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í einliðaleik og tvenndarleik í getuskiptum riðlum í öllum flokkum. Einnig verður keppt í tvíliðaleik í U17-U19 en það fer eftir skráningu hvort það verða riðlar eða útsláttur.


Mótið hentar bæði fyrir lengra og styttra komna. Allir þátttakendur þurfa að þekkja reglurnar og geta verið teljarar hjá öðrum, þau sem ekki eru komin með það á hreinu ættu að bíða eftir næsta móti.


Von er á 30 keppendum frá Danmörku á mótið sem taka þátt í U17-U19 flokknum.


Mótið hefst báða dagana klukkan 9:00 og verður frekari dagskrá ákveðin eftir að skráningu lýkur.


Mótsgjöld:

3.750 kr fyrir einliðaleik.

3.000 kr fyrir tvenndarleik og í tvíliðaleik U17/U19


Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.

Skráning: Fer fram á þessu eyðublaði og lýkur fimmtudaginn 29.október.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Hafnarfjarðarleikarnir - Special Olympics - 14.nóvember 2026


Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu


Flokkar: Special Olympics óháð aldri (þroskahamlaðir)


Keppnisfyrirkomulag: Raðað verður í riðla eftir getu og reynslu. Öll velkomin óháð aldri. Keppnin verður aðlöguð að hverjum einstakling og reynsla af badminton ekki nauðsynleg. Hægt er að mæta á æfingar hjá BH á sunnudögum klukkan 15:00-16:00 til að æfa sig fyrir mótið.


Keppt verður í einliðaleik og unified tvíliðaleik, fatlaður og ófatlaður saman. BH útvegar meðspilara fyrir þau sem vilja spila í unified tvíliðaleik.


Allir keppendur fá þátttökuverðlaun.


Mótsgjöld: 2.000 kr sem greiðist við skráningu í Abler.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram í Abler og lýkur laugardaginn 7.nóvember. Keppendur frá öðrum félögum skrá sig hjá sínum þjálfara sem þarf að senda skráningu á bh@bhbadminton.is. Sjá nánar hér.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Meistaramót BH og RSL - 20.-22.nóvember 2026


Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliða- og tvenndarleik. Hreinn útsláttur í tvíliðaleik. Reikna má með að keppni í einliðaleik hefjist á föstudegi kl 17 og ljúki á laugardag. Tvíliða- og tvenndarleikir verða spilaðir á laugardegi og sunnudegi en tímasetningar á því fara eftir skráningu. Nánari dagskrá verður birt þriðjudaginn 17.nóvember.


Mótsgjöld: 6.000 kr í einliðaleik og 4.500 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


ATHUGIÐ : 50% afsláttur af mótsgjöldum fyrir þá BH-inga sem aðstoða við uppsetningu og frágang á mottum.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 11.nóvember


Verðum með skemmtileg verðlaun að venju, sendið á bh@bhbadminton.is ef þið getið útvegað eitthvað sem væri gaman að gefa.


Spilað verður á keppnismottum félagsins og boðið upp á beina útsendingu og lifandi úrslit á youtube.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.



Deildakeppni BSÍ 2026-2027


Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog og Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði


Dagsetning:  27. og/eða 29.nóv í TBR og 5.-7. mars í Strandgötu


Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í 1. og 2. deild og mögulega úrvalsdeild.


Mótsgjöld: BH greiðir mótsgjöld fyrir sín lið


Skráning: Þau sem gefa kost á sér í BH liðin skrá sig á þessu eyðublaði eigi síðar en þriðjudaginn 27.október.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.



Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð, í Abler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Abler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


Í flestum barna- og unglingamótum er keppt í geturöðuðum riðlum þannig að sem flestir fái leiki við hæfi. Örfá mót eru ekki getuskipt og henta því ekki fyrir styttra komna en það er sérstaklega tekið fram þegar mótin eru auglýst að um sé að ræða A mót.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2026-2027 U9 - fædd 2018 og síðar U11 - fædd 2016 og 2017 U13 - fædd 2014 og 2015 U15 - fædd 2012 og 2013 U17 - fædd 2010 og 2011 U19 - fædd 2008 og 2009




 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page