top of page
Search

Vel mönnuð badmintonstöð á Allir með leikunum

2 days ago
1 min read

Allir með leikarnir, íþróttahátíð fyrir börn með fötlun eða stuðningsþarfir, fóru fram í Laugardalshöll laugardaginn 31. október.


Fimm frábærir BH-ingar sáu um að kynna badminton á leikunum. Það voru þjálfararnir Sólrún Anna og Natalía Ósk ásamt þeim Eyrún, Dalrós og Jóel sem eru elstu iðkendurnir í Allir með hópi BH.


Fjölmargir gestir lögðu leið sína á badmintonstöðina, prófuðu að spila og skemmtu sér vel. Margir sýndu áhuga á að halda áfram og ætluðu að kíkja í Strandgötu á næstu vikum til að prófa æfingu.


Allir með hópur BH æfir á sunnudögum kl. 15:00–16:00 í Íþróttahúsinu við Strandgötu og eru öll velkomin að mæta og prófa.


Nánari upplýsingar um hópinn má finna hér.


BH-ingarnir sem stóðu vaktina á badmintonstöð Allir með leikanna. Frá vinstri Natalía Ósk, Sólrún Anna, Eyrún, Dalrós og Jóel.
BH-ingarnir sem stóðu vaktina á badmintonstöð Allir með leikanna. Frá vinstri Natalía Ósk, Sólrún Anna, Eyrún, Dalrós og Jóel.

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page