Hafnarfjarðarleikarnir í Special Olympics badminton
Laugardaginn 14. nóvember fara Hafnarfjarðarleikarnir í Special Olympics badminton fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður alla Special Olympics einstaklinga velkomna til þátttöku í skemmtilegu badmintonmóti þar sem gleði, hreyfing og þátttaka verða í fyrirrúmi.
Allir eru velkomnir, óháð aldri, getu og reynslu af badminton. Keppendum verður raðað í riðla eftir getu og reynslu og keppnin aðlöguð að hverjum einstaklingi. Það er því ekki nauðsynlegt að hafa æft badminton áður til að geta tekið þátt.
Keppt verður í einliðaleik og unified tvíliðaleik þar sem fatlaður og ófatlaður einstaklingur spila saman. BH útvegar meðspilara fyrir þau sem vilja taka þátt í unified tvíliðaleik en hafa ekki félaga til að spila með.
Allir keppendur fá þátttökuverðlaun og er markmiðið fyrst og fremst að allir fái tækifæri til að njóta þess að spila badminton í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi.
Helstu upplýsingar um mótið:
Dagsetning: Laugardagur 14. nóvember 2026
Tími: Kl. 10:00–14:00
Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Þátttökugjald: 2.000 kr.
Skráningarfrestur: Sunnudagur 8. nóvember
Skráningu lýkur á sunnudag!
Við hvetjum alla áhugasama til að skrá sig og taka þátt í þessum skemmtilega viðburði. Iðkendur BH skrá sig í Abler en aðrar skráningar berist á bh@bhbadminton.is í síðasta lagi sunnudaginn 8. nóvember. Í skráningu þarf að koma fram nafn, kennitala, keppnisgreinar og upplýsingar um getustig keppanda.
Þau sem vilja prófa badminton fyrir mótið eru einnig velkomin á Allir með æfingu BH sunnudaginn 8. nóvember kl. 15:00–16:00 í Íþróttahúsinu við Strandgötu.
Við hlökkum til að sjá ykkur hress á Hafnarfjarðarleikunum!





Comments