Skráning í næstu mót
- 1 hour ago
- 3 min read
Skráning er hafin í næstu badmintonmót sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.
Vakin er athygli á því að strax í september verður spilað eftir nýju stigakerfi BWF í 15 stig. Hægt er að kynna sér breytinguna nánar hér.
Reykjavíkurmeistaramót barna og unglinga - 19.-20. september 2026
Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík
Dagsetning : 19. - 20. september 2026
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í einliða- og tvenndarleik í getuskiptum riðlum í U13-U19 flokkunum og einliðaleik í U11 flokknum. Mótið hentar bæði fyrir lengra og styttra komna en athugið að allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar og geta verið teljarar hjá öðrum. Þau sem ekki eru með það á hreinu og þau sem eru nýlega byrjuð að æfa ættu að bíða eftir næsta móti.
Mótið hefst báða dagana kl 10:00. Einliðaleikur er áætlaður á laugardeginum og tvenndarleikur á sunnudeginum.
Minnum á að spilað verður eftir nýju fyrirkomulagi uppí 15 í þessu móti og öllum öðrum mótum vetrarins.
Mótsgjöld: 3.200 kr fyrir einliðaleik og 2.800 kr á mann í tvenndarleik. Mótsgjaldið í U13-U19 flokkunum þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090, 6000 kr ef báðar greinar. Mótsgjaldið í U11 verður rukkað í Abler.
Skráning: Fer fram á þessu eyðublaði og lýkur sunnudaginn 13.september.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Meistaramót UMFA - 26.-27. september 2026
Staðsetning: Íþróttamiðstöðin að Varmá (Mosfellsbær)
Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.
Keppnisfyrirkomulag: Útsláttur í einliðaleik. Riðlar í tvíliða- og tvenndarleik. Stefnt er að því að hver grein verði spiluð út á einum degi en raðað verður niður á daga eftir skráningu.
Mótanefnd UMFA áskilur sér rétt á að spila 1 umferð í völdum greinum föstudagskvöldið 25. september, ef þátttaka og uppröðun kallar á slíkt.
Minnum á að spilað verður eftir nýju fyrirkomulagi uppí 15 í þessu móti og öllum öðrum mótum vetrarins.
Mótsgjöld: 4.500 kr hver grein. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur fimmtudaginn 17.september.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Abler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Abler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.
Í flestum barna- og unglingamótum er keppt í geturöðuðum riðlum þannig að sem flestir fái leiki við hæfi. Örfá mót eru ekki getuskipt og henta því ekki fyrir styttra komna en það er sérstaklega tekið fram þegar mótin eru auglýst að um sé að ræða A mót.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2026-2027 U9 - fædd 2018 og síðar U11 - fædd 2016 og 2017 U13 - fædd 2014 og 2015 U15 - fædd 2012 og 2013 U17 - fædd 2010 og 2011 U19 - fædd 2008 og 2009





Comments