Spilað í 15 stig frá næsta hausti
Alþjóðabadmintonsambandið (BWF) samþykkti nýverið breytingu á stigakerfi í badminton. Alþjóðlega tekur breytingin gildi 4. janúar 2027, en aðildarsamböndum var gefinn kostur á að innleiða reglurnar fyrr. Á ársþingi Badmintonsambands Íslands var samþykkt að taka nýja kerfið upp strax haustið 2026 líkt og á hinum Norðurlöndunum. Því verður leikið eftir nýju stigakerfi strax í september.
Alþjóðabadmintonsambandið hefur undanfarin ár rannsakað mismunandi stigakerfi með það að markmiði að þróa badmintonleikinn áfram. Samkvæmt niðurstöðum sambandsins skilar nýja kerfið meðal annars:
meiri spennu þar sem hvert stig vegur þyngra,
auðveldari dagskrárgerð á mótum,
minna líkamlegu álagi á leikmenn yfir langt keppnistímabil.
Á móti krefjast styttri lotur meiri einbeitingar frá fyrsta bolta, þar sem minna svigrúm er til að vinna upp forskot andstæðings.
Helstu breytingarnar eru:
Hver lota er leikin upp í 15 stig.
Leikhlé verður þegar fyrri leikmaður nær 8 stigum.
Í oddalotu (þriðju lotu) er skipt um vallarhelming þegar annar leikmaður nær 8 stigum.
Ef staðan verður 14–14 þarf að vinna með tveggja stiga mun. Hámarksstaðan er 21–20, þar sem sá sem nær 21 stigi vinnur lotuna.





Comments