top of page
Search

Skemmtilegt Reykjavíkurmót um helgina

24 minutes ago
1 min read

Um helgina fór Reykjavíkurmeistaramót barna og unglinga fram í TBR húsunum við Gnoðarvog. Keppt var í einliðaleik í U11-U19 flokkunum og tvenndarleik í U13-U19. Til keppni voru skráðir 148 leikmenn frá sjö félögum, þar af 43 frá BH. Okkar fólk stóð sig vel og spilaði marga flotta og spennandi leiki.


Spilað var í geturöðuðum riðlum og náðu margir BH-ingar að vinna til verðlauna í sínu getustigi.


U11

Ólafur Haukur Haraldsson 1.sæti í A riðli í einliðaleik

Aron Heiðar Hjaltason 2.sæti í A riðli í einliðaleik

Eiríkur Ægir Andrason 1.sæti í C riðli í einliðaleik

Birnir Freyr Arnarsson Hjaltalín 2.sæti í D riðli í einliðaleik


U13

Ýmir Örn Rolfsson 1.sæti í B riðli í einliðaleik

Lárus Freyr Helgason 1.sæti í C riðli í einliðaleik

Bjartur Ágústsson 2.sæti í C riðli í einliðaleik Hrafney Tinna Kolbeinsdóttir 1.sæti í C riðli einliðaleik


U15

Benedikt White 1.sæti í C riðli í einliðaleik

Katrín Sunna Erlingsdóttir 1.sæti í B riðli í tvenndarleik


U17

Lúðvík Kemp 1.sæti í A riðli í einliðaleik


U19

Katla Sól Arnarsdóttir 2.sæti í A riðli í einliða- og tvenndarleik

Hákon Kemp 2.sæti í A-riðli í tvenndarleik


Úrslit allra leikja má finna hér á tournamentsoftware.com.


Myndir frá mótinu má finna á Facebook síðu TBR og Facebook síðu BH.


Þökkum Badmintonráði Reykjavíkur og TBR fyrir vel skipulagt mót.


Þessir flottu BH-ingar kepptu í U11 flokknum og fengu öll verðlaunapening sem viðurkenningu fyrir þátttökuna.
Þessir flottu BH-ingar kepptu í U11 flokknum og fengu öll verðlaunapening sem viðurkenningu fyrir þátttökuna.



 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page