Næstu mót
- annaliljasig
- Sep 29
- 2 min read
Updated: Oct 6
Tvö mót eru framundan á mótaskrá Badmintonsambandins. Hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér mótin og skrá sig innan skráningarfrestsins. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.
TBR opið - 11.-12.október 2025
Staðsetning: TBR húsum, Gnoðarvogi 1
Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.
Keppnisfyrirkomulag: Útsláttur í einliðaleik. Riðlar í tvíliða- og tvenndarleik. Keppni hefst kl 10:00 báða dagana.
Mótsgjöld: 6.000 kr í einliðaleik og 4.500 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 1.október.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Unglingameistaramót KR - 18.-19.október 2025
Staðsetning: KR heimilið við Frostaskjól í Reykjavík
Dagsetning : 18.-19.október 2025
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Einliðaleikur í U11-U19. U11 spilar á sunnudag milli kl.9 og 12. Spiluð 1 lota í 21, 2-3 lotur á mann. Allir fá viðurkenningu fyrir þátttökuna í mótslok.
U13, U15 og U17-U19 spila einliðaleik í geturöðuðum riðlum.
Mótið hentar bæði fyrir lengra og styttra komna en athugið að allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar og treysta sér að vera teljarar hjá öðrum. Þau sem ekki eru með það á hreinu ættu að bíða eftir næsta móti.
Mótsgjöld: 2.000 kr á mann sem greiðist við skráningu í Abler.
Skráning: Fer fram í Abler og lýkur fimmtudaginn 9.október.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Abler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Abler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.
Nýtt keppnisfyrirkomulag á unglingamótum sem prófað var í fyrra heldur áfram. Ekki verða nein sérstök A og B mót eins og þekktist áður heldur verða öll mótin nema tvö spiluð í geturöðuðum riðlum. Sjá nánar með því að smella hér.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2025-2026 U9 - fædd 2017 og síðar U11 - fædd 2016 og 2015 U13 - fædd 2014 og 2013 U15 - fædd 2012 og 2011 U17 - fædd 2010 og 2009 U19 - fædd 2008 og 2007




Comments