top of page
Search

Næstu mót

  • annaliljasig
  • Sep 8
  • 3 min read

Updated: Sep 18

Þrjú mót eru framundan á mótaskrá Badmintonsambandins. Hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér mótin og skrá sig innan skráningarfrestsins. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.


Reykjavíkurmót barna og unglinga - 20.-21.september 2025


Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík


Dagsetning :  20. - 21. september 2025


Flokkar og keppnisfyrirkomulag: U11-U17. Keppt verður í tvíliða- og tvenndarleik í getuskiptum riðlum í U13-U17. Mótið hentar því bæði fyrir lengra og styttra komna en athugið að allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar og geta verið teljarar hjá öðrum. Þau sem ekki eru með það á hreinu og þau sem eru nýlega byrjuð að æfa ættu að bíða eftir næsta móti. Tvíliðaleikur verður á laugardeginum og tvenndarleikur á sunnudeginum. Mótið hefst báða dagana kl 10:00.


Keppt verður í einliðaleik í U11 flokknum og fá allir leikmenn í þessum flokki þátttökuverðlaun. Keppni fer fram á laugardag og hefst kl.10:00. Reikna má með að keppni taki 2-3 klst.

 

Mótsgjöld: 2.300 kr á mann í hverja grein fyrir tvíliða- og tvenndarleik. 1150 kr fyrir einliðaleik í U11. Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Fer fram á þessu eyðublaði og lýkur sunnudaginn 14.september.

Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Meistaramót UMFA - 20.-21.september 2025


Staðsetning: Íþróttamiðstöðin að Varmá (Mosfellsbær)


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum. Mælum með að U17 og yngri keppi frekar á Reykjavíkurmóti unglinga sem er sömu helgi.


Keppnisfyrirkomulag: Útsláttur í einliðaleik. Riðlar í tvíliða- og tvenndarleik. Stefnt er að því að hver grein verði spiluð út á einum degi en raðað verður niður á daga eftir skráningu.

Mótanefnd UMFA áskilur sér rétt á að spila 1 umferð í völdum greinum föstudagskvöldið 19. september, ef þátttaka og uppröðun kallar á slíkt.


Mótsgjöld: 4.500 kr hver grein. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur sunnudaginn 14.september. Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.



Unglingamót TBS - 3.-5.október 2025


Staðsetning: Íþróttahúsið á Siglufirði


Dagsetning: 3.-5.október 2025.


Flokkar og keppnisfyrirkomulag:  Keppt í einliða og tvíliðaleik í U11-U17. Stefnt er að því að spila einliðaleik á laugardag og tvíliðaleik á sunnudag. Mögulega einhverjir leikir á föstudagskvöld ef þörf verður á.

Kostnaður:  Farið verður í hópferð með rútu og gist á Siglufirði. Heildarkostnaður fyrir utan nesti er 32.000 kr. Sjá nánar hér.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 24. september.


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Abler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Abler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


Nýtt keppnisfyrirkomulag á unglingamótum sem prófað var í fyrra heldur áfram. Ekki verða nein sérstök A og B mót eins og þekktist áður heldur verða öll mótin nema tvö spiluð í geturöðuðum riðlum. Sjá nánar með því að smella hér.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2025-2026 U9 - fædd 2017 og síðar U11 - fædd 2016 og 2015 U13 - fædd 2014 og 2013 U15 - fædd 2012 og 2011 U17 - fædd 2010 og 2009 U19 - fædd 2008 og 2007


ree

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
bottom of page