top of page
Search

Næstu mót

  • annaliljasig
  • 2 days ago
  • 3 min read

Updated: 20 hours ago

Tvö mót eru á mótaskrá BSÍ í febrúar sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.


Óskarsmót KR - 7.-8.febrúar 2026


Staðsetning: KR heimilið við Frostaskjól


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Hreinn útsláttur í öllum greinum. Aukaflokkur í einliðaleik í 1. og 2. deild.


Mótsgjöld:  3.500 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur sunnudaginn 1.febrúar 2026.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.



Unglingamót Aftureldingar - 14.-15.febrúar 2026


Staðsetning: Íþróttamiðstöðin Varmá, Skólabraut, Mosfellsbær


Dagsetning: 14. - 15. febrúar 2026


Flokkar og keppnisfyrirkomulag: 


Keppt verður í getuskiptum riðlum í einliða- og tvíliðaleik í aldursflokkum U13-U19. Einnig verður keppt í einliðaleik í U9 og U11.

 

Vegna getuskiptingar hentar mótið bæði fyrir lengra og styttra komna. Allir þátttakendur þurfa þó að þekkja vel reglurnar og treysta sér að vera teljarar hjá öðrum, þau sem ekki eru komin með það á hreint ættu að bíða eftir næsta móti (t.d. Akranes 14.-15.mars eða BH 1.-3.maí).


Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 2.750 kr á mann fyrir tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn á reikning BH eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Skráning í U13-U19 fer fram á þessu eyðublaði en skráning í U9 og U11 verður í Abler. Skráningu lýkur miðvikudaginn 4.febrúar.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Abler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Abler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


Nýtt keppnisfyrirkomulag á unglingamótum sem prófað var í fyrra heldur áfram. Ekki verða nein sérstök A og B mót eins og þekktist áður heldur verða öll mótin nema tvö spiluð í geturöðuðum riðlum. Sjá nánar með því að smella hér.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2025-2026 U9 - fædd 2017 og síðar U11 - fædd 2016 og 2015 U13 - fædd 2014 og 2013 U15 - fædd 2012 og 2011 U17 - fædd 2010 og 2009 U19 - fædd 2008 og 2007



 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page