Fram að páskum eru þrjú badmintonmót á dagskrá. Hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér mótin og skrá sig innan skráningarfrestsins. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.
Landsbankamót ÍA - 8.-9.mars 2025
Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi
Dagsetning: 8.-9.mars 2025
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: U13-U19. Keppt verður í einliðaleik og tvenndarleik í geturöðuðum riðlum á þessu móti.
Allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar og treysta sér að vera teljarar hjá öðrum. Skipt í riðla eftir getustigi og því hentar mótið fyrir bæði byrjendur og lengra komin.
Mótsgjöld:
3.000 kr fyrir einliðaleik
2.500 kr fyrir tvenndarleik
Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 26.febrúar.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Reykjavíkurmót fullorðinna - 15.-16.mars 2025
Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog.
Dagsetning: 15.-16.mars 2025
Flokkar og keppnisfyrirkomulag:
Keppt í öllum greinum í úrvals, 1. og 2. deild fullorðinna.
Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri.
Mótsgjöld:
4.000 kr í einliðaleik, 3.500 kr í tvíliða- og tvenndarleik.
Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur mánudaginn 10. mars.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Íslandsmót unglinga - 4.-6.apríl 2025
Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog
Dagsetning: 4.-6.apríl 2025. Fer það eftir skráningu í mótið hvort keppni hefjist á föstudeginum eða laugardeginum. U11 spilar á laugardag.
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Keppt í U11-U19
Í U11 verður spilað skemmtimót. Keppt verður í einliðaleik og stefnt að því að spila á laugardeginum kl.15-19. Allir keppendur fá þátttökuverðlaun, ekki verður keppt til úrslita í þessum flokki.
Í U13-U19 verður keppt um Íslandsmeistaratitla í öllum greinum í bæði A og B getustigi.
A flokkur er hugsaður fyrir þau sem hafa keppt reglulega í nokkur ár. B flokkur er fyrir byrjendur og styttra komin. Leikmenn skrá sig í þá flokka sem þeir óska eftir að spila en þjálfarar eða röðunarnefnd BSÍ gætu fært milli getuflokka ef þurfa þykir.
Í einliðaleik, í U13-U19, verður keppt í riðlum. Verður leitast eftir því að spila í 3ja manna riðlum þar sem einn kemst áfram og er svo hreinn útsláttur þar á eftir. Í tvíliða- og tvenndarleik er fyrirkomulagið hreinn útsláttur.
Mótið er opið fyrir öll áhugasöm um keppni en athugið að allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar og treysta sér að vera teljarar hjá öðrum. Ekki mælt með að þau sem hafa aldrei keppt áður byrji á þessu móti, heldur bíði frekar eftir næsta móti.
Mótsgjöld:
U11:
2.000 kr fyrir einliðaleik
U13-U19:
3.000 kr fyrir einliðaleik og 2.500 kr á mann í hverja grein fyrir tvíliða- og tvenndarleik.
Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur sunnudaginn 23. mars.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Sportabler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Sportabler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.
Nýtt keppnisfyrirkomulag verður á unglingamótum í vetur. Ekki verða nein sérstök A og B mót eins og þekktist áður heldur verða öll mótin nema tvö spiluð í geturöðuðum riðlum. Sjá nánar með því að smella hér.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2024-2025 U9 - fædd 2016 og síðar U11 - fædd 2014 og 2015 U13 - fædd 2012 og 2013 U15 - fædd 2010 og 2011 U17 - fædd 2008 og 2009 U19 - fædd 2006 og 2007

Comments