Badmintonmót í janúar
- annaliljasig
- Dec 29, 2025
- 4 min read
Updated: 2 days ago
Keppnistímabilið í badminton heldur áfram af krafti í janúar. Fjögur mót eru á mótaskrá BSÍ í janúar sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.
Meistaramót TBR - 10.-11.janúar 2026
Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík
Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.
Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliðaleik en beinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Keppnis hefst kl 09:00 báða dagana.
Mótsgjöld: 6.000 kr í einliðaleik og 4.500 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn á reikning BH eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur þriðjudaginn 30.desember 2025.
Bílastæði: Þau sem koma á mótið fá frítt bílastæði í mótttöku TBR. Þarf að skrá sig fyrir hvern dag til að fá ekki rukkun.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Gríslingamót ÍA - 18.janúar 2026
Staðsetning: Íþróttahúsið á Jaðarsbökkum á Akranesi
ATHUGIÐ að íþróttahúsið á Jaðarsbökkum er hnetu- og fiskfrítt svæði og eru harðfiskur, Collab og allar vörur sem innihalda hnetur bannaðar í húsinu. Vörur sem innihalda hnetur eru t.d Corny og flestar orkustangir, margar tegundir af kexi, nutella, hnetusmjör og fleira.
Dagsetning: 18.janúar 2026
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Keppt í U9 (1.-3.bekkur) og U11 flokkunum (4.-5.bekkur). Skipt upp í lið óháð félagi og haldin skemmtileg liðakeppni þar sem allir spila einliðaleiki. U9 spila á hálfum velli en U11 á heilum velli. Allir spila 3-5 lotur. Hentar fyrir öll sem kunna nokkuð vel reglurnar og finnst gaman að keppa. Gert er ráð fyrir að U9 spli kl.10-12 og U11 kl.13-15 en tímasetningar koma betur í ljós þegar skráningar hafa borist.
Mótsgjöld: 1.000 kr á mann - allir fá þátttökuverðlaun
Skráning: Skráning fer fram í Abler og verður opin frá 2.-8.janúar.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
RSL Iceland International 2026
Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík
Dagsetning: 22.-25.janúar 2026
Flokkar og keppnisfyrirkomulag:
Alþjóðlegt badmintonmót þar sem besta badmintonfólk landsins etur kappi við sterka erlenda keppendur. Mótið er hluti af mótaröð Badminton Europe og gefur stig á heimslista.
Sjá lista yfir skráða leikmenn hér.
Barna- og unglingameistaramót TBR - 31.janúar-1.febrúar 2026
Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík
Dagsetning: 31.janúar til 1.febrúar 2026
Flokkar og keppnisfyrirkomulag:
Keppt verður í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í U13-U19 flokkunum. Aðeins fyrir mjög vana keppniskrakka þar sem ekki er skipt í riðla eftir getu.
Í U13 og U15 verður útsláttarkeppni í einliðaleik. Þau sem tapa fyrsta leik fara í aukaflokk. Í U17-U19 verður spilaður einliðaleikur í riðlum óháð getu og U17 og U19 flokkarnir sameinaðir. Allir fá amk 2 einliðaleiki. Hreinn útsláttur verður í tvíliða- og tvenndarleik í öllum aldursflokkum.
Keppni hefst kl.9:00 báða dagana.
Hópur Færeyinga tekur þátt í mótinu og ætlast mótshaldarar til að allir keppi í sínum aldursflokki.
Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 2.750 kr á mann fyrir tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn á reikning BH eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Fer fram á þessu eyðublaði og lýkur 22.janúar.
Bílastæði: Þau sem koma á mótið fá frítt bílastæði í mótttöku TBR. Þarf að skrá sig fyrir hvern dag til að fá ekki rukkun.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Abler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Abler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.
Nýtt keppnisfyrirkomulag á unglingamótum sem prófað var í fyrra heldur áfram. Ekki verða nein sérstök A og B mót eins og þekktist áður heldur verða öll mótin nema tvö spiluð í geturöðuðum riðlum. Sjá nánar með því að smella hér.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2025-2026 U9 - fædd 2017 og síðar U11 - fædd 2016 og 2015 U13 - fædd 2014 og 2013 U15 - fædd 2012 og 2011 U17 - fædd 2010 og 2009 U19 - fædd 2008 og 2007





Comments