top of page
Search

Fjölmargir BH-ingar í landsliðsverkefnum sumarsins

  • Aug 25
  • 2 min read

Í sumar sendi Badmintonsambandið leikmenn í þrjú landsliðsverkefni og átti BH fulltrúa í þeim öllum. Þá voru haldnar landsliðsæfingabúðir 5.-8.ágúst þar sem 24 BH-ingar voru boðaðir. Einnig fór okkar fólk á eigin vegum á alþjóðleg mót. Við erum stolt af öllum þessu duglegu leikmönnum sem leggja mikið á sig í æfingum og keppni.


North Atlantic Camp


North Atlantic Camp, landsliðsverkefni þar sem leikmenn frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi koma saman til æfinga og keppni fór fram á Grænlandi í júní. 12 leikmenn voru valdir til þátttöku, þar af fjórir frá BH: Aron Snær, Birnir Hólm, Hákon Kemp og Hilmar Karl. Frétt BSÍ um verkefnið.


Íslenski hópurinn sem fór á North Atlantic Camp á Grænlandi 2026
Íslenski hópurinn sem fór á North Atlantic Camp á Grænlandi 2026

Evrópuskólinn


Evrópuskólinn, landsliðsverkefni þar sem efnilegustu leikmenn Evrópu koma saman til æfinga og keppni, fór fram í Vejen í Danmörku í júlí. Fjórir íslenskir leikmenn komust inn í skólann í ár þar af tveir frá BH þeir Lúðvík Kemp og Erik Valur. Frétt BSÍ um verkefnið.


Íslenski hópurinn sem fór í Evrópuskólann 2026
Íslenski hópurinn sem fór í Evrópuskólann 2026

Yonex Bonn International


Fjórir BH-ingar kepptu fyrir Íslands hönd á alþjóðlega badmintonmótinu Yonex Bonn International sem fór fram í Þýskalandi í maí. Leikmennirnir eru þau Guðmundur Adam, Natalía Ósk, Rakel Rut og Rúnar Gauti. Ekki unnust neinir sigrar að þessu sinni en mikilvæg reynsla. Úrslit má finna hér.



All England U19


BH-ingarnir Katla Sól og Rúnar Gauti ásamt félögum sínum í U19 landsliðinu tóku þátt í All England U19 mótinu í Birmingham í júlí  Þátttaka í mótinu var liður í undirbúningi leikmanna fyrir EM U19 í Ungverjalandi í ágúst. Íslensku leikmennirnir stóðu sig vel á mótinu. Sjá úrslit hér.


U19 landliðið
U19 landliðið

Landsliðsæfingabúðir


BH átti 24 flotta fulltrúa á landsliðsæfingum í ágúst. Landsliðsbúðirnar voru haldnar 5.–8. ágúst með 11 æfingum og um 70 leikmönnum á þremur stöðum: Strandgötu í Hafnarfirði, TBR í Laugardal og Lágafell í Mosfellsbæ. Landsliðsþjálfarar Íslands eru þau Sune Gavnhold, Arna Karen Jóhannsdóttir og Gerda Voitechovskaja. Sjá nánar hér á vef BSÍ.


Gerda, Sune og Arna eru landsliðsþjálfarar Íslands 2026
Gerda, Sune og Arna eru landsliðsþjálfarar Íslands 2026


EM U19


Evrópumót U19 í badminton fór fram í Ungverjalandi í ágúst. Íslenska landsliðið tók þátt í bæði liða og einstaklingskeppni mótsins. Sex leikmenn voru í liðinu, þar af tveir frá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar, þau Rúnar Gauti og Katla Sól. Þrátt fyrir að íslensku leikmennirnir hefðu ekki komist áfram í keppninni lýstu þjálfarar hópsins mikilli ánægju með frammistöðu keppenda, bæði innan vallar sem utan. Jákvæður stígandi var í leik liðsins í gegnum mótið og keppendur öðluðust dýrmæta reynslu af því að spreyta sig á stóra sviðinu. Sjá frétt um einstaklingskeppnina hér og liðakeppnina hér.


Rúnar Gauti og Katla Sól á EM U19 í Ungverjalandi
Rúnar Gauti og Katla Sól á EM U19 í Ungverjalandi




 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page