Þrír BH-ingar á Special Olympics Festival
Updated: Sep 8
Þrír iðkendur í Allir með hóp BH, Dalrós Líf, Eyrún Birta og Jóel Bjarki, fóru á Special Olympics Festival í Hróarskeldu í Danmörku í lok maí. Með þeim í för voru þjálfararnir Sólrún Anna og Elín Ósk ásamt Önnu Lilju sem var fararstjóri. Þetta var í fyrsta sinn sem iðkendur frá BH keppa á Special Olympics móti en örugglega ekki það síðasta því upplifunin var frábær.
Um er að ræða risa stóra íþróttahátíð með yfir 1000 keppendum 16 ára og eldri í 12 mismunandi íþróttagreinum. Í heildina fóru 88 keppendur á mótið frá Íslandi auk þjálfara og aðstoðarfólks. Íslensku keppendurnir tóku þátt í badminton, boccia, borðtennis, frjálsum íþróttum, golfi, keilu, handbolta, knattspyrnu, nútímafimleikum og sundi.
Hópurinn flaug til Kaupmannahafnar föstudaginn 29. maí og strax þá um kvöldið var opnunarhátíð leikanna þar sem þau Jóel og Eyrún voru skiltaberar fyrir BH. Opnunarhátíðin var stórglæsileg með tónlist og tendrun ólympíueldsins. Á laugardeginum 30. maí var síðan keppt í einliðaleik þar sem okkar fólk stóð sig frábærlega. Jóel og Dalrós voru í 2.sæti í sínum riðlum og Eyrún í 3.sæti í sínum. Á laugardagskvöldið var síðan skemmtikvöld þar sem boðið var uppá þriggja rétta máltíð, happdrætti og diskótek. Á sunnudeginum 31. maí var keppt í tvíliðaleik þar sem okkar fólk hélt áfram að gera góða hluti. Eyrún og Jóel voru í 2.sæti í sínum riðlum með dönskum meðspilurum og Dalrós í 5.sæti með Eðvald frá Nes á Suðurnesjunum. Geturaðað var í riðla keppninnar og fengu allir góða leiki. Að keppni lokinni var þriðja hátíðin, lokahátíð þar sem aftur var boðið uppá glæsilega dagskrá og ólympíueldurinn slökktur. Á sunnudagskvöldið var pizzaveisla og spilakvöld hjá BH hópnum. Hópurinn flaug svo heim mánudaginn 1. júní himinglöð með skemmtilega upplifun á sínu fyrsta móti erlendis.
Special Olympics festival er haldið annað hvert ár á mismunandi stöðum í Danmörku. Árið 2028 munu leikarnir fara fram í Randers á Jótlandi. BH mun sækjast eftir því að fá aftur úthlutuð sæti á mótið.





Comments