top of page
Search

Uppfærð mótaskrá

Mótaskrá Badmintonsambands Íslands hefur verið uppfærð vegna samkomutakmarkanna og er stefnt að því að síðustu mót vetrarins verði á eftirfarandi dagsetningum ef reglur leyfa:


7.-9.maí - Bikarmót BH í Strandgötu - Börn og unglingar í U13-U19 - öll getustig

8.-9.maí - Snillingamót BH í Strandgötu- Börn í U9 og U11 - öll getustig

14.-16.maí - Íslandsmót unglinga á Akranesi - U11-U19 - aðeins fyrir vant keppnisfólk 16.maí - Vormót trimmara í TBR - 18 ára og eldri sem ekki hafa keppt í M eða A fullorðinna

28.-30.maí - Meistaramót Íslands í TBR - M, A og B fl. fullorðinna - aðeins fyrir vant keppnisfólk


Við munum opna fyrir skráningar í þessi mót um leið og ljóst verður hvort samkomutakmörkunum verður aflétt og þar með hægt að halda mótin.


Almennt um badmintonmót Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrán sig á uppgefnu skráningarformi innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.

B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Flokkaskiptingar barna og unglinga frá veturinn 2020-2021 U9 - fædd 2012 og síðar U11 - fædd 2010 og 2011 U13 - fædd 2008 og 2009 U15 - fædd 2007 og 2006 U17 - fædd 2005 og 2004 U19 - fædd 2003 og 2002



bottom of page