Unga kynslóðin fyllir Strandgötu um helgina
- 2 hours ago
- 2 min read
Það verður líf og fjör í Íþróttahúsinu við Strandgötu um helgina þegar 230 börn og unglingar taka þátt í Unglingamóti BH og Snillingamóti BH. Keppendur koma frá sex félögum: BH, Hamar, ÍA, TBR, TBS og UMFA. Spilað verður á keppnismottum BH og mikilvægt að allir mæti í hreinum innanhússkóm með botni sem ekki litar.
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Föstudagur 1.maí
kl.10:00-17:30
Unglingamót BH U13-U15 tvíliðaleikur meyja
U15-U19 tvíliðaleikur pilta
U17-U19 tvíliðaleikur stúlkna
Laugardagur 2.maí
kl.8:45
Mæting hjá U9 keppendum - Snillingamót BH
kl.9:00-11:00
Keppni og verðlaunaafhending í U9 - Snillingamót BH
kl.11:30-17:00
Unglingamót BH U13 tvíliðaleikur hnokka
U15-U19 tvenndarleikur A og C riðlar
Sunnudagur 3.maí
kl.8:45
Mæting hjá U11 keppendum - Snillingamót BH
kl.9:00-11:30
Keppni og verðlaunaafhending í U11 - Snillingamót BH
kl.12:00-16:30
Unglingamót BH U13 tvenndarleikur
U15-U19 tvenndarleikur B riðlar
Leikjaniðurröðun í U13-U19
Niðurrröðun og tímasetningar einstakra leikja á Unglingamóti BH má finna hér á tournamentsofware.com. Eins og venjulega er dagskráin birt með fyrirvara um nauðsynlegar breytingar t.d. vegna forfalla eða mistaka. Ef ýtt er á nafn leikmanns sjást allir leikir viðkomandi á mótinu. Undantekning er þó sú að þau sem eru í riðlum sem heita bæði bókstaf og tölu t.d. A1, B2, D2 fá leik um sæti eftir riðlakeppnina. Til að sjá tímasetningar sætisleikja er hægt að ýta á nafn flokks og svo sætisleik. Gott er að kíkja aftur á dagskrána kvöldið fyrir keppni ef einhverjar breytingar hafa orðið á tímasetningum.
Mælum með að leikmenn í U13-U19 mæti 30 mínútum fyrir áætlaðan leiktíma í hús til að hita upp og gera sig klár fyrir keppni. Þegar keppni í hverjum riðli/hóp lýkur er myndataka og verðlaunaafhending. Sigurvegarar fá verðlaun og aðrir þátttakendur smá glaðning, mælum því með að hinkra eftir því.
Mjög mikilvægt er að láta þjálfara vita ef upp koma veikindi eða önnu forföll svo hægt sé að bregðast við því.
Nýtt keppnisfyrirkomulag í U9 og U11
Á Snillingamótinu er keppt í einliðaleik á hálfum velli. Stuttur hálfur völlur og lækkað net í U9 en hefðbundinn hálfur völlur í U11.
Í ár verður prófað nýtt keppnisfyrirkomulag sem ýtir undir gleðina við að spila og tekur í burtu pressuna við að vinna eða tapa. Hver leikur er spilaður í 7 mínútur og ekki verða talin stig heldur áhersla lögð á að hrósa fyrir góð högg og flott spil. Sá sem ”skorar” gefur upp og mun eldra aðstoðarfólk hjálpa við það. Geturaðað verður inn á velli þannig allir fá jafnt spil og jákvæða upplifun. Stefnt er að því að hver leikmaður fái 4-5 leiki. Í lok mótsins verður spilað fjall/pókó/kóngaleikur og svo fá allir sumarglaðning.
Mæting kl.8:45 hjá öllum keppendum, U9 á laugardag en U11 á sunnudag.
Hlökkum til að eiga skemmtilega badmintonhelgi með ykkur í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.





Comments