top of page
Search

Íþróttahúsið við Strandgötu og umræðan um menningarhús

  • 16 hours ago
  • 2 min read

Undanfarna daga hefur starfsfólk, hluti stjórnar og nefndarfólks Badmintonfélags Hafnarfjarðar átt mjög gott og uppbyggilegt samtal við oddvita allra framboða sem bjóða sig fram hér í Hafnarfirði á laugardaginn. 


Samtalið er komið til vegna yfirlýsinga og umræðu um að breyta Íþróttahúsinu við Strandgötu í menningarhús. Eðlilega var félagsfólki brugðið enda ekki búið að vera neitt samtal við félagið í aðdraganda umræðunnar. Erla Björg Hafsteinsdóttir formaður BH skrifaði því pistil um málið á fréttavefnum Vísi og Hulda Hákonardóttir móðir og fulltrúi í foreldraráði fór yfir málið frá sjónarhóli foreldra í pistli á Facebook


Fulltrúar BH kynntu fyrir oddvitunum og í sumum tilfellum fleirum í forystusveit flokkanna, vinnu Húsnæðisnefndar félagsins sem gefin var út á aðalfundinum í apríl. Farið var vel yfir mikilvægi þess að ef félagið flytur úr Íþróttahúsinu við Strandgötu er nauðsynlegt að það fari í sérhæft húsnæði. Þetta þarf að gera í fullu samráði við félagið. Þá var undirstrikað mikilvægi þess að ekki verði neitt rof á starfseminni með tímabundnum lausnum.  


Öll framboðin voru mjög jákvæði í garð félagsins og fullvissuðu fulltrúa þess um að engar ákvarðanir hafa verið teknar og verða ekki teknar án samtals og samráðs við Badmintonfélagið. Ekkert verður aðhafst nema búið sé að ljúka við byggingu nýs sérhæfðs húsnæðis til að tryggja samfellu í starfi félagsins. Einnig var jákvætt að heyra vilja fyrir því að setja strax í kjölfar kosninga á fót nefnd með fulltrúum félagsins og bæjaryfirvalda um framtíðarhúsnæðismál þess óháð umræðu um menningarhús. 


Þetta eru sannarlega góðar fréttir fyrir BH eftir rússíbanareið síðustu daga.


Við hvetjum þau sem misstu af kynningu Húsnæðisnefndar BH á aðalfundinum í apríl til að skoða hana. Þar eru kynntir þrír valkostir fyrir framtíðarhúsnæði BH og hafa allir oddvitar flokkanna fengið kynningu á þeim:


  1. Stækkun Íþróttahússins við Strandgötu 

  2. Bygging Spaðahallar í Engidal (í samstarfi við Garðabæ)

  3. Sérhæfð aðstaða í íþróttaklasa í Hamranesi 


Félagsfólki, aðstandendum og öðrum velunnurum félagsins er velkomið að heyra í starfsfólki og stjórn ef þau hafa spurningar eða vangaveltur.


Íþróttahúsið við Strandgötu
Íþróttahúsið við Strandgötu

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page