top of page
Search

Spaðafjör - Sumarnámskeið 2026

  • 5 hours ago
  • 3 min read

Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður upp á sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 7-13 ára. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu og því ættu allir að fá að njóta sín. Einnig er boðið uppá námskeið fyrir vana keppniskrakka 11-16 ára. Námskeiðin fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu.


Í boði eru fimm 4-5 daga löng námskeið þar sem þátttakendur mæta í 3-7 klst á dag. Allir fá ávexti í stuttu hléi fyrir og eftir hádegi og léttan hádegismat ef um heilsdags námskeið er að ræða. Síðasta daginn eru grillaðar pylsur í hádeginu fyrir alla þátttakendur. Boðið er uppá fría gæslu frá 8:30-9:00 og 16:00-16:30.


Námskeiðin eru bæði fyrir þau sem vilja kynnast íþróttagreinum BH og þau sem eru þegar að æfa og vilja bæta sig. Hægt er að skrá sig á eins mörg námskeið og hverjum og einum hentar og er veittur 20% afsláttur ef keypt eru tvö eða fleiri námskeið. Þátttakendur þurfa að mæta í íþróttafötum og gjarnan í innanhússkóm (þau sem eiga ekki innanhús skó ættu að vera á tánum til að renna ekki). Einnig mikilvægt að vera klædd eftir veðri því farið verður út í stuttar ferðir á hverjum degi. Spaðar og kúlur eru lánaðar á staðnum.


Þjálfarar í sumar verða Una Hrund Örvar, badmintonþjálfari, Kjartan Ágúst Valsson, badmintonþjálfari, Gerda Voitechovskaja, íþróttafræðingur og badmintonþjálfari og Anna Lilja Sigurðardóttir, íþróttafræðingur og badmintonþjálfari. Þá munu ungmenni sem æfa hjá félaginu á aldrinum 15-18 ára starfa við námskeiðin.


Skráning hefst föstudaginn 15. maí hér í Abler. Hvetjum þau sem ætla að vera með í sumar að skrá sig sem fyrst til að missa ekki af plássi. Það var biðlisti flestar vikurnar hjá okkur sumarið 2025.


Námskeið í boði


Námskeiðin verða á eftirfarandi vikum:


Vika 1 - 15.-19.júní (4 dagar - frí 17.júní)

Vika 2 - 22.-26.júní

Vika 3 - 29.júní-2.júlí (4 dagar - lokað föstudag)

Vika 4 - 4.-7.ágúst (4 dagar - Versló)

Vika 5 - 10.-14.ágúst


Boðið er uppá fjórar tegundir af námskeiðum ofangreindar vikur:


  • Badmintonnámskeið fyrir 7-13 ára verður fyrir hádegi kl.9-12 og er opið fyrir öll áhugasöm. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu og því ættu allir að fá að njóta sín. Farið er út í stuttar ferðir flesta daga og því þarf að vera klædd eftir veðri. Einnig ýmsir leikir og spil á dagskrá.

  • Spaðafjör 1/2 dagur fyrir 7-13 ára verður eftir hádegi kl.13-16 og er opið fyrir öll áhugasöm. Farið er í borðtennis, ýmsa leiki og spil. Einnig er farið út í stuttar ferðir flesta daga. Það þarf því að koma klædd eftir veðri. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu og því ættu allir að fá að njóta sín.


  • Spaðafjör allan daginn fyrir 7-12 ára kl.9-16 er íþróttanámskeið þar sem mest áhersla er lögð á íþróttagreinar BH. Farið er í badminton fyrir hádegi og borðtennis eftir hádegi. Einnig eru ýmsir leikir, spil og útivist á dagskrá. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu og því ættu allir að fá að njóta sín.

  • Badmintonnámskeið fyrir vana keppniskrakka 11-16 ára verður eftir hádegi kl.13-16. Námskeiðið er fyrir vana keppniskrakka í badminton sem hafa keppt reglulega í amk 2 vetur og hafa áhuga og þolinmæði í að vinna í tæknilegum og taktískum atriðum í amk klukkutíma í einu. Einnig verður styrktar- og þolþjálfun hluti af dagskránni. Athugið að skráning á námskeið fyrir vana keppniskrakka fer fram í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is.


Verð


Hálfur dagur - 11.000 kr vikan (8.800 kr 4 dagar) Heill dagur - 23.000 kr vikan (18.400 kr 4 dagar)


20% afsláttur ef keypt eru 2 eða fleiri námskeið (sama fjölskylda og/eða einstaklingur). Hafið samband á netfangið bh@bhbadminton.is ef afsláttur kemur ekki sjálfkrafa inn.

Innifalið eru ávextir í hléi fyrir og eftir hádegi, grillaðar pylsur síðasta daginn og léttur hádegisverður (samlokur, pasta, súpa, grjóngrautur o.þ.h.) aðra daga fyrir þau sem eru skráð allan daginn. Einnig er boðið uppá fría gæslu kl.8:30-9 og 16-16:30 fyrir þau sem þurfa.


Nánari upplýsingar um námskeiðin eru veittar í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is og í síma 8686361 (Anna Lilja).



 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page