Vellir til leigu í sumar
- 23 hours ago
- 1 min read
Í sumar verður hægt að leigja badmintonvelli á þriðjudagseftirmiðdögum/kvöldum hjá okkur í Strandgötunni. Tilvalið fyrir vinahópa eða fjölskyldur að koma saman og spila badminton.
Tveir tímar eru í boði:
16:30-17:30
17:30-18:30
Hægt er að velja eftirfarandi tímabil:
2.júní til 7. júlí - 6 skipti á 22.000 kr/völlurinn
4.-25. ágúst - 4 skipti á 16.000 kr/völlurinn
Greiða þarf fyrir leiguna fyrirfram en hægt er að bóka með tölvupósti á bh@bhbadminton.is og gildir fyrstir koma, fyrstir fá. Öllum fyrirspurnum verður svarað samdægurs.
Lánum spaða og plastkúlur frítt. Hægt að kaupa fjaðrakúlur hjá starfsfólki. Box með 12 RSL kúlum kosta 6.200 kr og er hægt að kaupa í afgreiðslunni í Strandgötu.
Stakur völlur kostar 5.900 kr/klst verður hægt að bóka staka velli í Noona frá og með 1.júní.





Comments