Taktu í spaðann í vetrarfríinu!
- 4 hours ago
- 1 min read
Fimmtudaginn 19.febrúar kl.10:00-14:00 verður opið hús í Íþróttahúsinu við Strandgötu Öll áhugasöm eru velkomin að koma og prófa badminton og borðtennis. Þjálfarar úr báðum deildum verða á staðnum og taka vel á móti fólki. Frábært tækifæri að bjóða vinum og ættingjum með sér að prófa þessar skemmtilegu íþróttagreinar.
Það verða fjölmargir viðburðir á dagskrá í Hafnarfirði í vetrarfríinu en nánari upplýsingar um þá má finna á vef bæjarins.





Comments