Sumargleði framundan og síðustu æfingar vetrarins
- 4 days ago
- 2 min read
Badmintonvetrinum lýkur senn og framundan er sumargleði og síðustu æfingar vetrarins. Síðustu sunnudagsæfingar og opinn tími verða sunnudaginn 17. maí. Allir hópar eiga að vera komnir með skipulagið þessa síðustu daga vetrarins í Abler en hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir það helsta.
Allir með
Síðasta æfing vetrarins hjá Allir með hópnum verður sunnudaginn 17. maí. Extra mikið fjör á dagskrá og ísveisla í lokin.
U9
Síðasta sunnudagsæfing vetrarins verður 17. maí en síðasta miðvikudagsæfingin 20. maí. Miðvikudaginn 27. maí verður svo sumargleði hjá hópnum kl.15-17 með leikjum, fjöri og veitingum í lokin.
U11
Síðasta æfing U11 hópsins verður föstudaginn 22. maí. Þriðjudaginn 26. maí verður svo sumargleði hjá hópnum kl.15-17 með leikjum, fjöri og veitingum í lokin.
U13-U15
Síðasta æfing U13-U15 hópsins verður fimmtudaginn 21. maí. Þriðjudaginn 26. maí verður svo sumargleði hjá hópnum kl.17:30-19 þar sem farið verður í pílu og leiki og boðið uppá veitingar í lokin.
Ungmennahópur U17 og eldri
Fimmtudaginn 21. maí verður síðasta æfing ungmennahópsins. Þriðjudaginn 26. maí verður svo sumargleði hjá hópnum kl.17:30-19 þar sem farið verður í pílu og leiki og boðið uppá veitingar í lokin.
Keppnishópar
Keppnishópur leikmanna U15 og yngri verður með hefðbundna æfingadagskrá til 22. maí. Þriðjudaginn 26. maí verður svo sumargleði hjá hópnum kl.17:30-19 þar sem farið verður í pílu og leiki og boðið uppá veitingar í lokin.
Leikmenn í keppnishópum U17 og eldri verða með síðustu æfingu 20. maí en fimmtudaginn 21. maí verður burger og pílupartý hjá hópnum kl.18:30-20:30.
Fullorðinshópar
Síðasta mánudagsæfing fullorðinshópanna verður mánudaginn 18. maí og síðasta miðvikudagsspil 20. maí. Hópunum er boðið í burger og pílupartý með eldri keppnishópunum fimmtudaginn 21. maí kl.18:30-20:30.
Útleiguhópar
Hópar sem eru með velli til leigu verða með sína dagskrá óbreytta til 28. maí. Í sumar verða vellir til leigu á þriðjudögum kl.16:30 og 17:30 en nánari upplýsingar um það koma fljótlega.
Takk fyrir veturinn kæru félagar. Í sumar verður hægt að leigja velli á þriðjudögum fyrir vinahópa og fjölskyldur. Sumarnámskeið verða fyrir 7-16 ára og sumaræfingar fyrir keppnishópa. Það ættu því allir að geta tekið í spaðann í sumar. Næsti badmintonvetur hefst mánudaginn 31. ágúst.





Comments