Stuð og stemning á Sleepover í Strandgötu
- Mar 2
- 1 min read
Það var mikið stuð og frábær stemning á árlegu Sleepover í Strandgötu sem fram fór 27.-28. febrúar. Þessi viðburður er fyrir U13-U19 aldurshópana og er alltaf vinsæll. Í ár skráðu 44 iðkendur sig til þátttöku.
Þjálfararnir Una Hrund og Sólrún Anna stýrðu fjölbreyttri dagskrá með aðstoð frá U19 krökkunum okkar þeim Angelu Líf, Birki Darra, Hrafnhildi Eddu, Kötlu Sól, Birki Darra og Stefáni Loga. Sett var upp liðakeppni með ýmsum þrautum eins og BH-paintball, glasapong, samvinnurennu, vatnshana o.fl. Lið Angelu sigraði eftir æsispennandi keppni. Einnig var farið í feluleik í myrkri og spilaður tvíliðaleikur þar sem yngri spiluðu með eldri.
Allir fengu pizzu í kvöldmat og boðið var uppá glæsilegt ávaxtahlaðborð í eftirrétt. Hópurinn mætti í hús kl.18 á föstudag og fór heim eftir frágang og morgunmat kl.10 á laugardag. Flestir vel þreyttir því það var lítið sofið en mikið leikið.
Þökkum Sólrúnu og Unu fyrir frábært skipulag og eldri krökkunum fyrir að vera einstaklega skemmtileg og góð við þau yngri. Klárlega bestu börn bæjarins saman komin.
Meðfylgjandi mynd var tekin af hópnum í byrjun en fleiri myndir má finna á Facebook og Instagramf.





Comments