top of page
Search

Stórglæsilegt Meistaramót Íslands í Hafnarfirði

  • Apr 26
  • 2 min read

Dagana 23.-25.apríl fór Meistaramót Íslands í badminton fram í glæsilegri umgjörð í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Á mótinu keppti allt besta badmintonfólk landsins um Íslandsmeistaratitla í úrvals, 1. og 2. deild fullorðinna. Skráðir keppendur voru 121 talsins, þar af 37 frá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar.


Hafnfirðingar náðu mjög góðum árangri á mótinu. Í úrvalsdeild sigruðu þær Una Hrund Örvar og Sólrún Anna Ingvarsdóttir í tvíliðaleik kvenna en þetta var þeirra fyrsti Íslandsmeistaratitill í efsta flokki. Í öðru sæti í tvíliðaleiknum voru þær Katla Sól Arnarsdóttir og Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir sem einnig koma frá BH. Sólrún Anna var auk þess í öðru sæti í einliðaleik kvenna.


Í 1. deild voru BH-ingar með mikla yfirburði, unnu 7 af 8 bikurum og fengu auk þess 5 silfurverðlaun. Sigurður Eðvarð Ólafsson náði þeim einstaka árangri að sigra þrefalt í 1. deildinni. Hann sigraði í einliðaleik, tvíliðaleik með Erik Val Kjartanssyni og tvenndarleik með Kötlu Sól Arnarsdóttur. Í öðru sæti í tvenndarleik var einnig par frá BH, Natalía Ósk Óðinsdóttir og Rúnar Gauti Kristjánsson. Í einliðaleik kvenna mættust tvær BH stelpur í úrslitum þar sem Alexandra Ýr Stefánsdóttir sigraði og Angela Líf Kuforiji var í öðru sæti. Í tvíliðaleik kvenna voru þrjár BH stelpur í úrslitum. Lena Rut Gígja sigraði ásamt Emmu Katrínu Helgadóttur frá Tindastól og í öðru sæti voru þær Sigrún María Valsdóttir og Katrín Stefánsdóttir.


Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.


Það var fjölmennt í stúkunni alla mótsdagana, bæði aðstandendur, gamlir Íslandsmeistarar og íþróttaáhugafólk nutu þess að horfa á skemmtilega leiki og gæða sér á heimabökuðu góðgæti sem ungir BH-ingar seldu í fjáröflunarskyni. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, Valdimar Víðisson, forseti ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, formaður BH, Erla Björg Hafsteinsdóttir, varaformaður BSÍ, Guðrún Björk Gunnarsdóttir og Anna Lilja Sigurðardóttir, mótsstjóri og framkvæmdastjóri BH veittu verðlaun.


Myndir sem Kristján Pétur Hilmarsson tók fyrir BH á mótinu eru komnar í myndasafn hér á Facebook. Hafsteinn Snær ljósmyndari BSÍ var á svæðinu seinni tvo keppnisdagana og eru myndir frá honum komnar hér á Facebook og fleiri væntanlegar.


Badmintonsamband Íslands hélt mótið í samstarfi við Badmintonfélag Hafnarfjarðar og gekk það vel í alla staði. Yfirdómarinn Laufey Sigurðardóttir og hennar teymi hjá BSÍ undirbjó og stýrði mótinu vel og af röggsemi. Fjölmennur hópur sjálfboðaliða frá BH sáu um að gera glæsilega og hátíðlega umgjörð ásamt þeim Guðrúnu og Guðbjörgu frá BSÍ. Þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg fyrir frábært framlag og stórglæsilegt Meistaramót Íslands 2026.



Fjórar BH stelpur í úrslitum í tvíliðaleik kvenna í úrvalsdeild. Una Hrund og Sólrún Anna Íslandsmeistarar í fyrsta sinn. Katla Sól og Hrafnhildur Edda í 2.sæti.
Fjórar BH stelpur í úrslitum í tvíliðaleik kvenna í úrvalsdeild. Una Hrund og Sólrún Anna Íslandsmeistarar í fyrsta sinn. Katla Sól og Hrafnhildur Edda í 2.sæti.

Lilja Bu frá TBR var Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna. Sólrún Anna frá BH í 2.sæti.
Lilja Bu frá TBR var Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna. Sólrún Anna frá BH í 2.sæti.

Íslandsmeistarar BH í 1. deild. Frá vinstri: Lena Rut, Katla Sól, Sigurður Eðvarð, Erik Valur, Alexandra Ýr.
Íslandsmeistarar BH í 1. deild. Frá vinstri: Lena Rut, Katla Sól, Sigurður Eðvarð, Erik Valur, Alexandra Ýr.
Sólrún Anna og Una Hrund Íslandsmeistarar í tvíliðaleik kvenna í úrvalsdeild í fyrsta sinn 2026.
Sólrún Anna og Una Hrund Íslandsmeistarar í tvíliðaleik kvenna í úrvalsdeild í fyrsta sinn 2026.
Glæsileg umgjörð í Íþróttahúsinu við Strandgötu
Glæsileg umgjörð í Íþróttahúsinu við Strandgötu

Willum, Erla, Guðrún og Valdimar veittu verðlaun í úrvalsdeild.
Willum, Erla, Guðrún og Valdimar veittu verðlaun í úrvalsdeild.

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page