top of page
Search

Stjórn endurkjörin á aðalfundi

  • 5 hours ago
  • 1 min read

Updated: 4 hours ago

Aðalfundur Badmintonfélags Hafnarfjarðar fór fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu í kvöld. Fundarstjóri var Frímann Ari Ferdinandsson. Engar breytingar urðu á stjórnarfólki milli ára, hvorki í aðalstjórn, stjórn badmintondeildar né stjórn borðtennisdeildar.


Á fundinum kom fram að félagið er og hefur alltaf verið rekið réttu megin við núllið þrátt fyrir að reksturinn væri krefjandi. Þá bar ársskýrslan þess merki að mjög blómlegt starf er í báðum deildum. Ein lagabreytingartillaga lá fyrir fundinum sem var samþykkt.


Húsnæðisnefnd BH sem stofnuð var á aðalfundinum 2025 var með stutta kynningu á störfum nefndarinnar. Núverandi húsnæði félagsins í Íþróttahúsinu við Strandgötu er sprungið og styttist í að komi að BH á forgangslista um byggingu íþróttamannvirkja í Hafnarfirði. Nefndin taldi þrjá kosti áhugaverðasta í stöðunni: stækkun á Strandgötu, nýtt hús í Engidal eða nýtt hús í Hamranesi. Þá ályktaði nefndin að mikilvægt væri að hefja samtal við bæjaryfirvöld sem fyrst um næstu skref.


Erla Björg Hafsteinsdóttir formaður félagsins sagðist stolt af félaginu og þakkaði iðkendum, þjálfurum, starfsfólki, stjórnarfólki, foreldrum, samstarfsaðilum og öðrum sem koma að starfi félagsins fyrir gott starf.


Hér fyrir neðan má finna gögn fundarins:




Erla Björg Hafsteinsdóttir, formaður BH, flutti skýrslu stjórnar á aðalfundinum.
Erla Björg Hafsteinsdóttir, formaður BH, flutti skýrslu stjórnar á aðalfundinum.

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page