Spaðafjör - Sumarnámskeið 2025
- annaliljasig
- May 8
- 3 min read
Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður upp á sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 6-16 ára. Hentar fyrir allt frá byrjendum til keppniskrakka í badminton og byrjendur í borðtennis. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu og því ættu allir að fá að njóta sín. Námskeiðin fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu.
Í boði eru fimm viku löng námskeið þar sem þátttakendur mæta í 3-7 klst á dag. Allir fá ávexti í stuttu hléi fyrir og eftir hádegi og léttan hádegismat ef um heilsdags námskeið er að ræða. Á föstudögum eru grillaðar pylsur í hádeginu fyrir alla þátttakendur. Boðið er uppá fría gæslu frá 8:30-9:00 og 16:00-16:30.
Námskeiðin eru bæði fyrir þau sem vilja kynnast íþróttagreinum BH og þau sem eru þegar að æfa og vilja bæta sig. Hægt er að skrá sig á eins mörg námskeið og hverjum og einum hentar og er veittur 20% afsláttur ef keypt eru tvö eða fleiri námskeið. Þátttakendur þurfa að mæta í íþróttafötum og gjarnan í innanhússkóm (þau sem eiga ekki innanhús skó ættu að vera á tánum til að renna ekki). Einnig mikilvægt að vera klædd eftir veðri því farið verður út í stuttar ferðir á hverjum degi. Spaðar og kúlur eru lánaðar á staðnum.
Þjálfarar í sumar verða Una Hrund Örvar, badmintonþjálfari, Sólrún Anna Ingvarsdóttir, íþróttafræðingur og badmintonþjálfari, og Anna Lilja Sigurðardóttir, íþróttafræðingur og badmintonþjálfari. Þá munu ungmenni sem æfa hjá félaginu á aldrinum 15-17 ára starfa við námskeiðin.
Skráning er hafin hér í Abler. Hvetjum þau sem ætla að vera með í sumar að skrá sig sem fyrst til að missa ekki af plássi. Það var biðlisti í allar vikurnar hjá okkur sumarið 2024.
Námskeið í boði
Námskeiðin verða á eftirfarandi vikum:
Vika 1 - 16.-20.júní (4 dagar - frí 17.júní)
Vika 2 - 23.-27.júní
Vika 3 - 30.júní-4.júlí
Vika 4 - 5.-8.ágúst (4 dagar - Versló)
Vika 5 - 11.-15.ágúst
Boðið er uppá fjórar tegundir af námskeiðum ofangreindar vikur:
Badmintonnámskeið fyrir byrjendur og styttra komin 6-13 ára verður fyrir hádegi kl.9-12 og er opið fyrir öll áhugasöm. Farið er út í stuttar ferðir flesta daga og því þarf að vera klædd eftir veðri. Einnig ýmsir leikir og spil á dagskrá.
Borðtennisnámskeið fyrir byrjendur og styttra komin 6-13 ára verður eftir hádegi kl.13-16 og er opið fyrir öll áhugasöm. Farið er út í stuttar ferðir flesta daga og einn dag farið í sund. Það þarf því að koma klædd eftir veðri. Einnig ýmsir leikir og spil á dagskrá. Þetta námskeið er ekki í boði í viku 2.
Spaðafjör fyrir 6-12 ára kl.9-16 er íþróttanámskeið þar sem mest áhersla er lögð á íþróttagreinar BH og hentar best fyrir byrjendur og styttra komin í þessum greinum. Farið er í badminton fyrir hádegi og borðtennis eftir hádegi. Einnig eru ýmsir leikir, spil og útivist á dagskrá. Einu sinni í hverri viku verður farið í sund eftir hádegið.
Badmintonnámskeið fyrir vana keppniskrakka 11-16 ára verður eftir hádegi kl.13-16. Námskeiðið er fyrir vana keppniskrakka í badminton sem hafa keppt reglulega í amk 2 vetur og hafa áhuga og þolinmæði í að vinna í tæknilegum og taktískum atriðum í amk klukkutíma í einu.
Verð
Hálfur dagur - 10.450 kr vikan (8.360 kr 4 dagar) Heill dagur - 21.450 kr vikan (17.160 kr 4 dagar)
20% afsláttur ef keypt eru 2 eða fleiri námskeið.
Innifalið eru ávextir í hléi, grillaðar pylsur síðasta daginn og léttur hádegisverður (samlokur, pasta, súpa, grjóngrautur o.þ.h.) aðra daga fyrir þau sem eru skráð allan daginn (Spaðafjör). Einnig er boðið uppá fría gæslu kl.8:30-9 og 16-16:30 fyrir þau sem þurfa.
Nánari upplýsingar um námskeiðin eru veittar í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is og í síma 8686361 (Anna Lilja).

Comments