top of page
Search

Spaðafjör - Sumarnámskeið 2024

Updated: May 17

Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður upp á sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 6-16 ára. Hentar fyrir allt frá byrjendum til keppniskrakka í badminton og byrjendur í borðtennis. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu og því ættu allir að fá að njóta sín. Námskeiðin fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu.


Í boði eru fimm viku löng námskeið þar sem þátttakendur mæta í 3-7 klst á dag. Allir fá ávexti í stuttu hléi fyrir og eftir hádegi og léttan hádegismat ef um heilsdags námskeið er að ræða. Á föstudögum eru grillaðar pylsur í hádeginu fyrir alla þátttakendur. Boðið er uppá fría gæslu frá 8:30-9:00 og 16:00-16:30.


Námskeiðin eru bæði fyrir þau sem vilja kynnast íþróttagreinum BH og þau sem eru þegar að æfa og vilja bæta sig. Hægt er að skrá sig á eins mörg námskeið og hverjum og einum hentar og er veittur 20% afsláttur ef keypt eru tvö eða fleiri námskeið. Þátttakendur þurfa að mæta í íþróttafötum og gjarnan í innanhússkóm (þau sem eiga ekki innanhús skó ættu að vera á tánum til að renna ekki). Einnig mikilvægt að vera klædd eftir veðri því farið verður út í stuttar ferðir á hverjum degi. Spaðar og kúlur eru lánaðar á staðnum.


Þjálfarar í sumar verða Una Hrund Örvar, badmintonþjálfari, Sólrún Anna Ingvarsdóttir, íþróttafræðinemi og badmintonþjálfari, og Anna Lilja Sigurðardóttir, íþróttafræðingur og badmintonþjálfari. Þá munu ungmenni sem æfa hjá félaginu á aldrinum 15-17 ára starfa við námskeiðin m.a. Angela Líf, Elín Helga, Katla Sól, Baldur Freyr, Dagur Örn og Alexander Ivanov (borðtennis).


Skráning hefst 17. maí og fer fram hér í Sportabler. Hvetjum þau sem ætla að vera með í sumar að skrá sig sem fyrst til að missa ekki af plássi. Það var biðlisti í allar vikurnar hjá okkur sumarið 2023.


Námskeið í boði


Námskeiðin verða á eftirfarandi vikum:


Vika 1 - 10.-14.júní

Vika 2 - 18.-21.júní (4 dagar)

Vika 3 - 24.-28.júní

Vika 4 - 1.-5.júlí

Vika 5 - 12.-16.ágúst


Boðið er uppá fjórar tegundir af námskeiðum ofangreindar vikur:


  • Badmintonnámskeið fyrir byrjendur og styttra komin 6-14 ára verður fyrir hádegi kl.9-12 og er opið fyrir öll áhugasöm. Farið er út í stuttar ferðir flesta daga og því þarf að vera klædd eftir veðri. Einnig ýmsir leikir og spil á dagskrá.

  • Borðtennisnámskeið fyrir byrjendur og styttra komin 6-14 ára verður eftir hádegi kl.13-16 og er opið fyrir öll áhugasöm. Farið er út í stuttar ferðir flesta daga og einn dag farið í sund. Það þarf því að koma klædd eftir veðri. Einnig ýmsir leikir og spil á dagskrá. Þetta námskeið er aðeins í boði í viku 3-5.


  • Spaðafjör fyrir 6-12 ára kl.9-16 er íþróttanámskeið þar sem mest áhersla er lögð á íþróttagreinar BH og hentar best fyrir byrjendur og styttra komin í þessum greinum. Farið er í badminton fyrir hádegi og borðtennis eftir hádegi. Einnig eru ýmsir leikir, spil og útivist á dagskrá. Einu sinni í hverri viku verður farið í sund eftir hádegið.

  • Badmintonnámskeið fyrir vana keppniskrakka 11-16 ára verður eftir hádegi kl.13-16. Námskeiðið er fyrir vana keppniskrakka í badminton sem hafa keppt reglulega í amk 2 vetur og hafa áhuga og þolinmæði í að vinna í tæknilegum og taktískum atriðum í amk klukkutíma í einu.


Verð


Hálfur dagur - 9.500 kr vikan Heill dagur - 19.500 kr vikan


20% afsláttur ef keypt eru 2 eða fleiri námskeið.

Innifalið eru ávextir í hléi, grillaðar pylsur síðasta daginn og léttur hádegisverður (samlokur, skyr, súpa, grjóngrautur o.þ.h.) aðra daga fyrir þau sem eru skráð allan daginn (Spaðafjör). Einnig er boðið uppá fría gæslu kl.8:30-9 og 16-16:30 fyrir þau sem þurfa.


Nánari upplýsingar um námskeiðin eru veittar í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is og í síma 8686361 (Anna Lilja).



Comments


bottom of page