Í ljósi aukinna smita í samfélaginu minnum við á að eftirfarandi sóttvarnarreglur gilda í Strandgötu og mikilvægt að allir fari eftir þeim svo að allt gangi vel:
Þvo og spritta hendur fyrir og eftir æfingar/spil.
Virða 2 metra regluna utan badmintonvalla.
Iðkendur fæddir 2004 og eldri nota grímur í anddyri, á göngum og í klefum þar sem þar er ekki hægt að tryggja 2 metra.
Öll snerting á milli leikmanna (eins og high five) er bönnuð.
Ef kúlan fer inn á völlinn við hliðina á þá má ekki sækja boltann inn á völlinn heldur þurfa leikmennirnir sem þar eru að ýta honum til baka með spaðanum.
Hver hópur þarf að nota þann klefa sem honum er úthlutað þann daginn. Starfsmenn veita upplýsingar um hvaða klefa hver hópur á að nota þann daginn.
Engir áhorfendur eru leyfðir í húsinu. Foreldrar sem keyra sín börn þurfa að bíða úti í bíl.
Badmintoniðkendur ganga inn um dyr sem snýr að sjónum en iðkendur í borðtennis og dansi um dyr sem snúa út að kirkjunni
Þjálfarar verða með grímur á öllum æfingum og passa vel uppá að merkja við á öllum æfingum til að auðvelda smitrakningu.
Mikilvægt að allir sem finna fyrir covid líkum einkennum eða hafi verið í návígi við einhverja sem hugsanlega eru smitaðir haldi sig heima.
Allir þurfa að taka með sér brúsa með vatni á æfingar - ekki mælt með að drekka úr krönunum vegna smithættu.
Þreksalur í kjallara er lokaður nema fyrir bókaða hóptíma.
Strengingarhornið er opið fyrir þau sem eru með réttindi til að nota það en þar má aðeins vera einn inni í einu og spritta þarf alla snertifleti fyrir og eftir notkun.
Sjá nánar um sóttvarnarreglur sem gilda fyrir badmintonfólk hér á badminton.is.
Comments