Snillingamót BH og Unglingamót BH 1.-3.maí
- 1 day ago
- 2 min read
Dagana 1.-3.maí verður líf og fjör í Strandgötunni þegar Snillingamót BH og Unglingamót BH fara fram. Skráning í mótin er í fullum gangi og lýkur miðvikudaginn 22.apríl. Hvetjum öll börn og unglinga sem hafa áhuga á keppni til að vera með. Þetta eru síðustu mót vetrarins og næstu mót ekki fyrr en í september. Spilað verður á keppnismottum BH.
Snillingamót BH - 2.-3.maí 2026
Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Dagsetning: 2.-3.maí 2026
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Keppt í einliðaleik á hálfum velli í U9 og U11. Stuttur hálfur völlur og lækkað net í U9, hefðbundinn hálfur völlur í U11.
Við ætlum að prófa nýtt keppnisfyrirkomulag sem ýtir undir gleðina við að spila og tekur í burtu pressuna við að vinna eða tapa. Hver leikur er spilaður í 7 mínútur og ekki verða talin stig heldur áhersla lögð á að hrósa fyrir góð högg og flott spil. Sá sem ”skorar” gefur upp og mun eldra aðstoðarfólk hjálpa við það. Geturaðað verður inn á velli þannig allir fá jafnt spil og jákvæða upplifun. Stefnt er að því að hver leikmaður fái 4-5 leiki. Í lok mótsins verður spilað fjall og svo fá allir þátttökuverðlaun.
Þau sem eru á eldra ári (5.bekkur), komin með mikla reynslu í að keppa og kunna vel reglurnar í tvíliða og tvenndarleik geta prófað að keppa á Unglingamóti BH sem fer fram sömu helgi.
Dagskrá mótsins:
U9 (1.-3.bekkur) Spila milli kl.9 og 13 á laugardag 2. maí
U11 (4.-5.bekkur) Spila milli kl.9 og 13 á sunnudag 3. maí
Reiknum með að keppni standi yfir í 2 klst. Mögulega skipt í tvo hópa ef þarf vegna fjölda.
Mótsgjöld: 2.000 kr á mann
Mótsgjaldið þarf að greiða við skráningu í Abler eða leggja inná reikning BH kvittun á bh@bhbadminton.is með nafn barns í skýringu: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram í Abler appinu og lýkur miðvikudaginn 22.apríl.
Unglingamót BH - 1.-3.maí 2026
Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Dagsetning: 1.-3.maí 2026
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Keppt í tvíliða- og tvenndarleik í U13-U19
Spilað verður í geturöðuðum riðlum og því hentar mótið fyrir öll getustig sem þekkja vel reglurnar og treysta sér að vera teljarar hjá öðrum. Leitast verður við að hafa 3-4 pör í
hverjum riðli en það getur þó verið breytilegt eftir fjölda skráðra para. Ekki verður spilað uppúr riðlunum heldur fá sigurvegarar í hverjum riðli verðlaun.
Það kemur í ljós fljótlega eftir að skráning liggur fyrir hvaða flokkur og grein spilar hvaða dag. Stefnt er að því að gefa út niðurröðun með tímasetningum allra leikja miðvikudaginn 29.apríl.
Tímaramminn er gróflega eftirfarandi en hver riðill er spilaður á 3-4 klst og því eru keppendur ekki á staðnum alla helgina:
Föstudagur 1. maí kl.9-18 Laugardagur 2. maí kl.11-18 Sunnudagur 3. maí kl.11-17
Mótsgjöld: 2.500 kr á mann í hverja grein
Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 22.apríl.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.





Comments