top of page
Search

Skráning á sumarnámskeið í fullum gangi

Sumarnámskeið BH, Spaðafjör, þar sem boðið er uppá námskeið í badminton og borðtennis fóru vel af stað á mánudaginn. Uppselt var á námskeið fyrir byrjendur og styttra komna bæði í borðtennis og badminton og því hvetjum við þau sem hafa hug á að skrá sín börn næstu vikurnar að gera það sem fyrst hér í Sportabler. Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hér fyrir neðan.


Spaðafjör í Strandgötu - Sumarnámskeið 2021


Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður upp á badminton- og borðtennisnámskeið í sumar fyrir byrjendur og lengra komna krakka á aldrinum 6-16 ára. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu og því ættu allir að fá að njóta sín. Námskeiðin fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu.


Í boði eru fimm viku löng námskeið þar sem þátttakendur mæta í 3-7 klst á dag. Allir fá ávexti í stuttu hléi fyrir og eftir hádegi og léttan hádegismat ef um heilsdags námskeið er að ræða. Á föstudögum er grillveisla í hádeginu sem öllum þátttakendum er boðið í. Boðið er uppá fría gæslu frá 8:30-9:00 og 16:00-16:30.


Námskeiðin eru bæði fyrir þau sem vilja kynnast íþróttagreinum BH og þau sem eru þegar að æfa og vilja bæta sig. Hægt er að skrá sig á eins mörg námskeið og hverjum og einum hentar. Þátttakendur þurfa að mæta í íþróttafötum og gjarnan í innanhússkóm (þau sem eiga ekki innanhús skó ættu að vera á tánum til að renna ekki). Einnig mikilvægt að vera klædd eftir veðri því farið verður út í stuttar ferðir á hverjum degi. Hægt er að fá lánaða spaða og kúlur á staðnum.

Yfirþjálfarar eru Una Hrund Örvar, badmintonþjálfari, og Anna Lilja Sigurðardóttir, íþróttafræðingur. Þorbergur Pálmarsson verður borðtennissérfræðingur sumarsins en Tómas Ingi Shelton yfirþjálfari borðtennisdeildar kemur inn í síðustu vikuna með honum. Einnig munu badminton og borðtennis ungmenni á aldrinum 15-18 ára starfa við námskeiðin.


Skráning fer fram hér í Sportabler.

Námskeið í boði


Vika 1 – 21.-25.júní Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton 10-16 ára vanir keppniskrakkar kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Borðtennis 10-16 ára vanir keppniskrakkar kl.9-12 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði


Vika 2 – 28.júní-2.júlí Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton 10-16 ára vanir keppniskrakkar kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði


Vika 3 - 5.júlí-9.júlí Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton 10-16 ára vanir keppniskrakkar kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði

Vika 4 – 9.-13.ágúst Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton 10-16 ára vanir keppniskrakkar kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði


Vika 5 – 16.-20.ágúst Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton 10-16 ára vanir keppniskrakkar kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Borðtennis 10-16 ára vanir keppniskrakkar kl.9-12 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði


Verð


Hálfur dagur 5.500 kr vikan ef keypt er ein vika 1.100 kr afsláttur (20%) af seinni viku ef keyptar eru tvær vikur eða tvö börn skráð 1.650 kr afsláttur (30%) af þriðju og fjórðu viku ef barn/börn er skráð í þrjár vikur eða fleiri


Heill dagur 10.000 kr vikan ef keypt er ein vika 2.000 kr afsláttur (20%) af seinni viku ef keyptar eru tvær vikur eða tvö börn skráð 3.000 kr afsláttur (30%) af þriðju og fjórðu viku ef barn/börn er skráð í þrjár vikur eða fleiri


Innifalið eru ávextir í hléi, grillveisla síðasta daginn og léttur hádegisverður (samlokur, súpa, grjóngrautur o.þ.h.) aðra daga fyrir þau sem eru skráð allan daginn.


Nánari upplýsingar um námskeiðin eru veittar í gegnum bhbadminton@hotmail.com og í síma 8686361 (Anna Lilja).



bottom of page