top of page
Search

Skráning er hafin í næstu mót

Updated: Oct 28, 2022

Framundan eru mörg spennandi mót sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér, tvö unglingamót, eitt fullorðinsmót og eitt öldungamót. Hvetjum einnig iðkendur sem hafa áhuga á keppni til að kíkja á mótaskrá Badmintonsambandsins hér á badminton.is og setja mót sem þau stefna á í dagatalið hjá sér. Skráningu lýkur yfirleitt viku fyrir mót en upplýsingar um nákvæman tíma koma á vefinn okkar badmintonfelag.is um leið og upplýsingar berast.


Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um næstu mót sem hægt er að skrá sig á og neðst eru almennar upplýsingar um badmintonmót.


Vetrarmót unglinga - 29.-30.október 2022


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: U13-U19 - Keppt í bæði A og B getustigi í einliðaleik og því geta bæði byrjendur og lengra komnir tekið þátt. Aðeins keppt í A í tvíliða- og tvenndarleik.


Keppnisfyrirkomulag: Mótið hefst kl.10 báða dagana. Keppt verður í riðlum í einliðaleik en hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Öruggt að einliðaleikur í B flokkum verður aðeins á laugardag. Aðrar tímasetningar skýrast þegar skráning liggur fyrir.


Mótsgjöld: 2.200 kr fyrir einliðaleik og 1.900 kr fyrir tvíliða- og tvenndarleik (mótsgjöld skal leggja inná reikning BH þegar niðurröðun í mótið er tilbúin - skráðir fá póst með upplýsingum um það)


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur fimmtudaginn 20.október.



Unglingamót Aftureldingar - 11.-13.nóvember 2022


Staðsetning: Íþróttamiðstöðin Varmá í Mosfellsbæ


Flokkar: U13-U19 A og B - Hentar fyrir öll getustig


Keppnisfyrirkomulag: Einliðaleikur í riðlum. Stefnt að því að dagskrá verði eftirfarandi: Laugardagur kl. 10-12 - Keppni í U11 - spilaðir eins margir leikir og hægt er og svo fá allir þátttökuverðlaun kl. 12:30-16 - Keppni í U13 - allir fá amk 2 leiki - spilað til úrslita Sunnudagur kl. 9:30-13 - Keppni í U15 - allir fá amk 2 leiki - spilað til úrslita kl.13-16 - Keppni í U17-U19 - allir fá amk 2 leiki - spilað til úrslita


Mótsgjöld: 1.500 kr fyrir U11 og 2.000 kr fyrir U13, U15 og U17-U19


Skráning: Skráning fer fram í Sportabler eða með tölvupósti á bh@bhbadminton.is. Skráningu lýkur sunnudaginn 6.nóvember.



Meistaramót BH og RSL - 18.-20.nóvember 2022


Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Stefnt að því að spila í riðlum þar sem tveir komast áfram í útsláttarkeppni ef mögulegt er vegna fjölda skráninga. Reikna má með að keppni í einliðaleik verði á föstudag og laugardag en tvíliða- og tvenndarleikir á laugardag og sunnudag. Dagskrá verður birt mánudaginn 14.nóvember.


Mótsgjöld: 4.000 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik (50% afsláttur fyrir BH-inga sem aðstoða við uppsetningu og frágang á mottum).


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 9.nóvember



Íslandsmót öldunga 25.-26.nóvember 2022


Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu


Flokkar: Keppt verður í A og B getustigi í eftirfarandi flokkum karla og kvenna í einliða-,

tvíliða- og tvenndarleik:

  • 35-44 ára (fædd 1987-1978)

  • 45-54 ára (fædd 1977-1968)

  • 55-64 ára (fædd 1967-1958)

  • 65 ára og eldri (fædd 1957 og fyrr)

Öllum er frjálst að skrá sig í A-getustig. Í B-getustigi mega aðeins þau keppa:

  • Sem aldrei hafa orðið íslandsmeistarar í A-flokki/1.deild.

  • Leikmaður sem var fæður upp í efstu deild þ.e. meistaraflokk þegar það var og hét á einhverjum tímapunkti.

  • Leikmaður sem hefur unnið sig upp í Úrvalsdeild samkvæmt styrkleikalista á einhverjum tímapunkti.

Keppnisfyrirkomulag: Stefnt er að því að spila í riðlum þannig að allir fái amk 2 leiki í hverri grein en það fer eftir þátttöku hvernig það raðast.


Mótsgjöld: 4.000 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 16.nóvember.



Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2022-2023 U9 - fædd 2014 og síðar U11 - fædd 2012 og 2013 U13 - fædd 2010 og 2011 U15 - fædd 2008 og 2009 U17 - fædd 2006 og 2007 U19 - fædd 2004 og 2005



bottom of page