top of page
Search

Skráning hafin á Íslandsmót unglinga

  • 5 hours ago
  • 2 min read

Íslandsmót unglinga í badminton fer fram í TBR húsunum helgina eftir páska 10.-12..apríl. Keppt verður í U11-U19 flokkunum. Mótið er opið fyrir öll áhugasöm um keppni en athugið að allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar og treysta sér að vera teljarar hjá öðrum. Ekki mælt með að þau sem hafa aldrei keppt áður byrji á þessu móti, heldur bíði frekar eftir næsta móti sem er 1. -3. maí hjá okkur í Strandgötu.


Skráning BH-inga í U13-U19 flokkana fer fram á þessu eyðublaði en U11 flokkurinn er skráður í Abler. Skráningu lýkur miðvikudaginn 25. mars.


Boðið verður uppá aukaæfingar í páskafríinu til undirbúnings fyrir mótið. Æfingatímar verða settir inní Abler þegar nær dregur.


Vonum að sem flesti geti og vilji taka þátt.


Helstu upplýsingar um mótið:


Íslandsmót unglinga 2026


Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík


Dagsetning: 10.-12.apríl 2026. Fer það eftir skráningu í mótið hvort keppni hefjist á föstudeginum eða laugardeginum. U11 flokkurinn spilar á laugardag.


Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Keppt í U11-U19

Í U11 verður spilað skemmtimót. Keppt verður í einliðaleik óháð kyni og stefnt að því að spila á laugardeginum kl.15-19. Allir keppendur fá þátttökuverðlaun, ekki verður keppt til úrslita í þessum flokki.


Í U13-U19 verður keppt um Íslandsmeistaratitla í öllum greinum í bæði A og B getustigi (athugið ekki geturaðaðir riðlar eins og á flestum mótum í vetur heldur aðeins þessi tvö getustig).


Leikmenn skrá sig í þá flokka sem þeir óska eftir að spila en þjálfarar eða röðunarnefnd BSÍ gætu fært milli getuflokka ef þurfa þykir.


Í einliðaleik, í U13-U19, verður keppt í riðlum. Verður leitast eftir því að spila í 3ja manna riðlum þar sem einn kemst áfram og er svo hreinn útsláttur þar á eftir. Í tvíliða- og tvenndarleik er fyrirkomulagið hreinn útsláttur.


Mótið er opið fyrir öll áhugasöm um keppni en athugið að allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar og treysta sér að vera teljarar hjá öðrum. Ekki mælt með að þau sem hafa aldrei keppt áður byrji á þessu móti, heldur bíði frekar eftir næsta móti sem er 1. -3. maí hér í BH.


Mótsgjöld:


U11:

3.000 kr fyrir einliðaleik - greiðist við skráningu í Abler


U13-U19:

3.500 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í hverja grein fyrir tvíliða- og tvenndarleik.


Mótsgjaldið í U13-U19 þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning:


Skráning U13-U19 fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 25.mars. Skráning í U11 flokkinn fer fram í Abler.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Strákarnir sem kepptu í U11 á Íslandsmóti unglinga 2025 ásamt Sólrúnu og Unu þjálfurum
Strákarnir sem kepptu í U11 á Íslandsmóti unglinga 2025 ásamt Sólrúnu og Unu þjálfurum
Stelpurnar sem kepptu í U11 flokknum á Íslandsmóti unglinga 2025 ásamt Unu þjálfara
Stelpurnar sem kepptu í U11 flokknum á Íslandsmóti unglinga 2025 ásamt Unu þjálfara

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page