top of page
Search

Páskaáskorun


Badmintonfélag Hafnarfjarðar sendir iðkendum sínum og fjölskyldum þeirra bestu óskir um gleðilega páska. Hvetjum alla til að vera duglega að sinna vel andlegri og líkamlegri heilsu og koma tvíefld til baka á æfingar eftir fríið. Þjálfarar hafa útbúið tvær áskoranir fyrir iðkendur sem tilvalið er að nýta sér sem hvatningu í fríinu.



Páskaáskorunin á myndinni hér fyrir neðan er fjölbreytt og skemmtileg afþreying í fríinu. Hentar líklega best fyrir U9, U11, U13 og U15 hópana okkar en það mega að sjálfsögðu allir taka þátt. Þetta eru 16 mismunandi verkefni og tilvalið að taka 3-4 á dag í páskafríinu. Þau sem klára allt fara í pott og eiga möguleika á verðlaunum.


Hér má finna prentvæna pdf útgáfu af páskaáskoruninni. Þau sem eru ekki með prentara geta líka búið til sitt eigið blað með 16 reitum og skrifað í þá.

paskaaskorun-2021
.pdf
Download PDF • 196KB

Stravaáskorunin okkar hentar vel fyrir U15 og eldri en yngri mega að sjálfsögðu taka þátt ef þau vilja. Skorum á iðkendur að fara út að ganga, hlaupa eða hjóla að minnsta kosti 3 km á dag og skrá hreyfinguna í Strava. Þau sem skrá sig í klúbbinn Badmintonfélag Hafnarfjarðar á Strava og fara amk 3 km á dag að meðaltali þar til æfingar byrja aftur fara í pott og geta átt möguleika á verðlaunum.



Gangi ykkur vel og góða skemmtun :)

bottom of page