top of page
Search

Næstu mót

Nú stendur mótatímabilið sem hæðst og eru eftirfarandi mót framundan sem BH-ingar geta skráð sig á með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com

Gríslingamót ÍA - 13.janúar

Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi Flokkar: U9 og U11 - hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna Keppnisfyrirkomulag: Skipt í lið og spilaður einliðaleikur. Mjög skemmtilegt form. Gera má ráð fyrir að U9 spili kl.10-12 og U11 kl.13-15. Mótsgjöld: 500 kr á mann Skráningu lýkur: Miðvikudaginn 9.janúar


Óskarsmótið - 19.-20.janúar

Staðsetning: KR heimilið Flokkar: Meistara, A og B flokkur fullorðinna - aðeins fyrir vant keppnisfólk

Keppnisfyrirkomulag: Útsláttur í öllum greinum nema aukaflokkur í einliðaleik í A og B flokki

Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða og tvenndarleik

Skráningu lýkur: Sunnudaginn 13.janúar


Almennt um mót

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.

Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.

B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti. Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.

Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019

U9 - fædd 2010 og síðar U11 - fædd 2008 og 2009 U13 - fædd 2007 og 2006 U15 - fædd 2005 og 2004 U17 - fædd 2003 og 2002 U19 - fædd 2001 og 2000



bottom of page