top of page
Search

Næstu mót

Næstu mót sem BH-ingar geta skráð sig á eru eftirfarandi:

Kjörísmót Hamars - 3.nóvember

Staðsetning: Hamarshöllinni í Hveragerði Flokkar: U11-U19 B mót - hentar vel fyrir byrjendur - þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki taka þátt Keppnisfyrirkomulag: Einliðaleikur þar sem allir fá amk tvo leiki. Tvíliðaleikur með útslætti, strákar og stelpur mega spila saman. Mótsgjöld: 1800 kr fyrir einliðaleik og 1500 kr á mann í tvíliðaleik Skráningu lýkur: Sunnudaginn 29.október Mótið hefst kl. 9.00 og lýkur samdægurs. Stefnt er að því að gefa út mótaskrá fimmtudaginn 1.nóvember.

Haustmót trimmara - 4.nóvember

Staðsetning: TBR húsunum Flokkar: Trimmflokkur (18 ára og eldri sem ekki eru í A-flokki og hafa aldrei verið í meistaraflokki) Keppnisfyrirkomulag: Tvíliðaleikur þar sem leikmenn eru dregnir samna í hverri umferð. Leiknar amk 5 umferðir. Keppni hefst klukkan 11:00 Mótsgjöld: 2200 kr á mann Skráningu lýkur: Skráning á staðnum

Meistaramót BH - 16.-18.nóvember

Staðsetning: Strandgata Flokkar: Meistara, A og B flokkur fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Keppnisfyrirkomulag: Einliðaleikur í riðlum þar sem tveir komast uppúr riðlinum í útsláttarkeppni. Tvíliða- og tvenndarleikur með útslætti eða riðlum ef tími gefst til. Stefnt að því að hafa einliðaleiki á föstudag og laugardag en tvíliða og tvenndar á sunnudag. Mótsgjöld: 3.000 krónur á mann í einliðaleik og 2.500 krónur á mann tvíliða- og tvenndarleik. Skráningu lýkur: Sunnudaginn 11.nóvember

Almennt um mót

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.

Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.

B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti. Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.

Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.

Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019

U9 - fædd 2010 og síðar U11 - fædd 2008 og 2009 U13 - fædd 2007 og 2006 U15 - fædd 2005 og 2004 U17 - fædd 2003 og 2002 U19 - fædd 2001 og 2000

bottom of page