top of page
Search

Næstu mót

Updated: Nov 30, 2021

Þrjú síðustu mót ársins eru framundan, Unglingamót TBS, Ljúflingamót TBR og Jólamót unglinga. Hvetjum keppnisglaða til að skrá sig. Nánari upplýsingar um dagskrá vetrarins og mót almennt má finna neðst í þessari frétt.

Unglingamót TBS - 5.desember 2021


Staðsetning: Siglufjörður


Flokkar: U9-U15 B


Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í einliða og tvíliðaleik í öllum flokkum nema U9 þar sem aðeins er keppt í einliðaleik. Mótið hefst kl.10:00 og lýkur sama dag. Allir sem ekki hafa unnið til verðlauna á A mótum eða sigrað B mót mega taka þátt. BH fer ekki í hópferð á mótið en foreldrum er að sjálfsögðu velkomið að fara með sín börn á mótið.


Mótsgjöld: 2.000 kr fyrir einliðaleik og 1.800 kr fyrir tvíliðaleik.


Skráningu lýkur: Mánudaginn 30.nóvember kl.16:00.


Skráning: Senda skal skráningar með tölvupósti á bhbadminton@hotmail.com


Ljúflingamót TBR - 11.desember 2021


Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog


Flokkar: U9 (fædd 2013 og síðar) og U11 (fædd 2012 og 2011). Hvetjum þau sem finnst gaman að keppa og eru farin að skilja reglurnar nokkuð vel til að vera með. Það koma fleiri mót á nýju ári fyrir þau sem eru ekki alveg tilbúin strax.


Keppnisfyrirkomulag: Vinamót þar sem allir keppa 3-5 leiki og fá viðurkenningu fyrir þátttökuna að móti loknu. Spilaður er einliðaleikur með plastboltum og eru strákar og stelpur í sama flokki. Keppni hefst kl.10 og verður lokið í seinast lagi kl.14:00.


Mótsgjöld: Aðeins 200 kr.


Skráningu lýkur: Mánudaginn 6.desember.


Skráning: Skráning fer fram í Sportabler eða með tölvupósti á bhbadminton@hotmail.com.



Jólamót unglinga - 18.desember 2021


Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog


Flokkar: U13-U19 A og B.

Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í einliðaleik í riðlum. Skipt í A og B getustig, hentar því bæði fyrir lengra og styttra komna. Þau sem hafa unnið B mót og/eða komist í úrslit á A móti verða að spila í A.


Mótsgjöld: 2.000 kr á mann.


Skráningu lýkur: Föstudaginn 10.desember


Skráning: Skráning fer fram í Sportabler og með tölvupósti á bhbadminton@hotmail.com



Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2021-2022 U9 - fædd 2013 og síðar U11 - fædd 2011 og 2012 U13 - fædd 2009 og 2010 U15 - fædd 2007 og 2008 U17 - fædd 2005 og 2006 U19 - fædd 2003 og 2004




bottom of page