top of page
Search

Næstu mót

Þá er mótatímabilið farið af stað af fullum krafti og eru eftirfarandi næstu mót sem BH-ingar geta skráð sig með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Hvetjum keppnisglaða til að taka þátt.


TBR Opið - 3.-4.október Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog Flokkar: Meistara, A og B flokkar fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Keppnisfyrirkomulag: Útsláttarkeppni í einliðaleik en keppt í riðlum í tvíliða- og tvenndarleik. Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik Skráningu lýkur: Fimmtudaginn 24.september


Unglingamót TBS - 9.-11.október

Staðsetning: Íþróttahúsið Siglufirði

Flokkar: U11-U19 A. Þetta er alltaf skemmtileg ferð sem við mælum með fyrir alla sem hafa einhverja reynslu af því að keppa. Þetta er eina ferðin á hverjum vetri þar sem er gist og því um að gera að nýta tækifærið. Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliðaleik en útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik Mótsgjöld: 2.000 kr fyrir einliðaleik og 1.500 kr fyrir tvíliða- og tvenndarleik. Áætlaður kostnaður fyrir rútu og gistingu er 12.000 kr og svo þarf að gera ráð fyrir mat líka. Heildarkostnaður fyrir helgina um 20.000 kr. Skráningu lýkur: Föstudaginn 2.október


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Flokkaskiptingar barna og unglinga frá veturinn 2020-2021 (gildir frá 1.okt) U9 - fædd 2012 og síðar U11 - fædd 20010 og 2011 U13 - fædd 2008 og 2009 U15 - fædd 2007 og 2006 U17 - fædd 2005 og 2004 U19 - fædd 2003 og 2002



bottom of page