top of page
Search

Næstu mót

Framundan eru nokkur badmintonmót sem BH-ingar geta skráð sig í með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Hvetjum keppnisglaða til að taka þátt.

Óskarsmót KR - 22.-23.febrúar Staðsetning: KR heimilið við Frostaskjól Flokkar: Meistara, A og B flokkar fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Keppnisfyrirkomulag: Hreinn útsláttur í öllum greinum og flokkum nema í einliðaleik í A og B flokki, þar verða riðlar. Keppt í tvíliða-og tvenndarleik í A og B flokki á laugardag og öllum greinum í meistaraflokki. Á sunnudag verður keppt í einliðaleik í A og B flokkum. Mótsgjöld: 2500 kr á mann í hverja grein Skráningu lýkur: Laugardaginn 15.febrúar

Unglingameistaramót Þórs - 29.febrúar Staðsetning: Íþróttamiðstöðin í Þorlákshöfn Flokkar: U9-U19 B. Mótið hentar vel fyrir þau sem ekki hafa keppt áður því þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki taka þátt. Keppnisfyrirkomulag: Í U9-U11 verður keppt í einliðaleik í geturöðuðum riðlum. Hentar því vel fyrir byrjendur. Í U13-U19 verður keppt í einliða- og tvíliðaleik en fyrirkomulag ræðst af þátttöku. Fámennir flokkar gætu verið sameinaðir. Frítt í sund að keppni lokinni. Mótsgjöld: 1500 kr fyrir einliðaleik og 1200 kr fyrir tvíliðaleik. Skráningu lýkur: Sunnudaginn 23.febrúar.

Deildakeppni BSÍ - 6.-8.mars Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog Flokkar: Meistara, A og B flokkar fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Keppnisfyrirkomulag: Íslandsmót liða. Þjálfarar BH raða í lið og reyna að koma öllu vönu keppnisfólki að sem vilja vera með. Mótsgjöld: 5.000 kr á mann Skráningu lýkur: Sunnudaginn 16.febrúar

Almennt um badmintonmót

Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.

B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.

Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.

Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2019-2020 U9 - fædd 2011 og síðar U11 - fædd 2009 og 2010 U13 - fædd 2008 og 2007 U15 - fædd 2006 og 2005 U17 - fædd 2004 og 2003 U19 - fædd 2002 og 2001


bottom of page