top of page
Search

Næstu mót

Framundan eru þrjú badmintonmót sem BH-ingar geta skráð sig á með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Hvetjum alla keppnisglaða til að vera með.


Meistaramót BH - 15.-17. nóvember

Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu

Flokkar: M.fl., A-flokkur og B-flokkur - aðeins fyri vant keppnisfólk 14 ára og eldri

Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í tvíliða- og tvenndarleik en hreinn útsláttur í einliðaleik. Keppni í einliðaleik verður föstudag og laugardag en í tvíliða- og tvenndarleik á laugardag og sunnudag.

Mótsgjöld: 3.500 krónur á mann í einliðaleik og 3.000 krónur á mann tvíliða- og tvenndarleik. Skráningu lýkur: Föstudaginn 8.nóvember


Unglingamót Aftureldingar - 23.-24. nóvember

Staðsetning: Íþróttamiðstöðinni að Varmá við Skólabraut, Mosfellsbæ. Flokkar: U13-U19 A og B flokkar og U11 A

Keppnisfyrirkomulag: Hraðmót í einliðaleik. Stefnt er að því að dagskrá verði: Laugardagur U11 kl.10-12 og U13 kl.12:30-16. Sunnudagur U15 kl.9:30-13:00 og U17-U19 kl.13:00-16:00.

Mótsgjöld: 1200 kr í U11 og 1800 kr í U13-U19

Skráningu lýkur: Sunnudaginn 17.nóvember


Atlamót ÍA og RSL - 30.nóvember - 1.desember

Staðsetning: Íþróttahúsið á Vesturgötu (Vegna framkvæmda við fimleikahúss við hlið íþróttahússins eru ekki búningsklefar og sturtur fyrir keppendur í íþróttahúsinu)

Flokkar: M.fl., A-flokkur og B-flokkur - aðeins fyri vant keppnisfólk 14 ára og eldri

Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í öllum greinum. Áætlað er að keppni í tvíliða- og tvenndarleik fari fram á laugardegi og keppni í einliðaleik fari fram á sunnudegi. Það fer eftir skráningu.

Mótsgjöld: kr. 3000 í einliðaleik og kr. 3000 pr. mann í tvíliðaleik og tvenndarleik. Skráningu lýkur: Sunnudaginn 24.nóvember


Almennt um mót


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.


Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019

U9 - fædd 2011 og síðar U11 - fædd 2009 og 2010 U13 - fædd 2008 og 2007 U15 - fædd 2006 og 2005 U17 - fædd 2004 og 2003 U19 - fædd 2002 og 2001



bottom of page